fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Fréttir

Telja stórsókn Rússa yfirvofandi – Hafa flutt 100.000 hermenn á svæðið

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. júlí 2023 09:00

Rússneskir hermenn í Úkraínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirmenn úkraínska hersins telja að Rússar hafi í hyggju að hefja stórsókn í austurhluta Úkraínu, norðan við Bakhmut. Þeir segja stöðuna „flókna“ en Rússar hafa safnað saman um 100.000 hermönnum á svæðinu og 900 skriðdrekum. Ef þetta er rétt, er þetta mjög stór herafli.

Ekki er vitað með vissu hversu margir af þessum hermönnum eru nýkomnir á svæðið og hversu margir hafa verið þar fram að þessu.

Norska ríkisútvarpið segir að Hanna Maljar, aðstoðarvarnarmálaráðherra Úkraínu, hafi sagt að Rússar reyni nú að sækja fram í Kharkiv, að borginni Kupjansk. „Við verjumst. Harðir bardagar standa yfir og staðan á vígvellinum breytist margoft á degi hverjum,“ sagði Maljar.

Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að rússneskar hersveitir hafi sótt fram um tvo kílómetra.  Úkraínsk yfirvöld segja stöðuna „flókna“ en þeim hafi tekist að halda aftur af Rússum.

Líklegt má telja að Rússar séu nú að gangsetja sókn á þeim svæðum sem Úkraínumenn náðu úr klóm þeirra í haust.

Gagnsókn Úkraínumanna hefur gengið hægt en margir höfðu vonast til að hún myndi ganga jafn hratt og vel og sókn þeirra á síðasta ári. Þeir hafa náð nokkrum ferkílómetrum lands úr klóm Rússa en Rússar hafa einnig sótt fram á nokkrum vígstöðvum.

Margir vestrænir hernaðarsérfræðingar telja að Úkraínumenn séu að „þreifa fyrir sér“ og læra á ný vopn sem þeir hafa fengið frá Vesturlöndum.  Úkraínsk yfirvöld segja að það sé meðvitað að hægt sé sótt fram, það sé gert til að forðast mikið mannfall.

Það hefur einnig hægt á sókninni að Rússar hafa komið gríðarlegum fjölda af jarðsprengjum fyrir og hafa grafið sig niður í varnarstöðu. Einnig þurfa Úkraínumenn að hafa hugann við að koma í veg fyrir að Rússar geti sótt fram í Kharkiv. Því hefur verið haldið fram að meginverkefni Úkraínumanna þessa dagana sé að ráðast á og veikja birgðaflutningalínur Rússa og stjórnstöðvar þeirra.

Á leiðtogafundi NATO í Vilnius nýlega var Úkraínumönnum heitið langdrægari flugskeytum en þeir hafa fengið til þessa. Er þar um að ræða frönsk og bresk flugskeyti sem draga allt að 300 km. Eru Úkraínumenn sagðir hafa fengið nokkur slík í hendurnar nú þegar. Þetta veitir þeim tækifæri til að ráðast á Rússa langt að baki fremstu víglínu.

Einnig er þjálfun úkraínskra flugmanna á F-16 orustuþotur að hefjast á Vesturlöndum. Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir að F-16 vélar verði komnar á flug yfir Úkraínu fyrir áramót.

Ekki er útilokað að yfirstjórn hersins vilji ekki senda öll vopn sín og hersveitir á vígvöllinn nú og vilji bíða eftir F-16 vélunum og þar með betri stöðu í loftinu.

Það er því hugsanlegt að úkraínska stórsóknin hefjist síðar en rætt hefur verið um, jafnvel ekki fyrr en í haust eða vetur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka
Fréttir
Í gær

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir
Fréttir
Í gær

Ekki hæfur til að vera úti meðal almennings – Kallaði lögreglumenn „aumingja“ og „fagga“

Ekki hæfur til að vera úti meðal almennings – Kallaði lögreglumenn „aumingja“ og „fagga“
Fréttir
Í gær

Rússar eru að safna liði við „virkisborg“ Úkraínu

Rússar eru að safna liði við „virkisborg“ Úkraínu