Áhugi barna á Pokémon-spjöldum varð til þess að Páll Ágúst Ólafsson, lögmaður og athafnamaður, situr uppi með giftingarhring með ókunnan eiganda. Páli er mikið í mun að eigandi hringsins fái hann aftur enda er vart hægt að hugsa sér persónulegri eign. Páll segir í færslu í íbúahópi Vesturbæinga á Facebook:
„Sonur minn kom heim með giftingarhring í dag. Einhver í 4ða bekk í Melaskóla var með hann og bauð syni mínum að skipta á hringnum og Pokemonspili. (Látum verðmætamat liggja milli hluta) Hann í sakleysi sínu gerði það og kom heim með hringinn og lét okkur foreldra sína fá hann. Ég efast ekki um að það er einhver þarna úti sem saknar hans mjög mikið og því vona ég innilega að internetið leysi þetta fyrir okkur. Inni í hringnum er skammstöfun sem eigandinn veit eflaust hver er. Miðað við stærð er þetta líklega karlmannshringur. Hægt er að senda mér skilaboð eða hringja í 8882600 ef þú ert eigandi hringsins eða veist hver það gæti verið.“
Páll segir í samtali við DV að sonur hans hafi játað skömmustulegur fyrir honum að Pokémon-spjaldið sem hann afhenti hinum drengnum hafi verið „feik gullspjald“. „Hann lét strák sem er einu ári eldri en hann fá feik „gull“ spjald í staðinn fyrir hringinn. Mér fannst það dálítið fyndið og krúttlegt en á sama tíma kjörinn tímapunktur til að fara yfir nokkur vel valin atriði er varða viðskiptasiðferði. Við hjónin litum á þetta sem tækifæri til að kenna syni okkar að það tapa allir á ósanngjörnum viðskiptaháttum,“ segir Páll Ágúst.
Páll Ágúst segir jafnframt að eigandi hringsins hafi ekki gefið sig fram en hann hafi fengið margar fyrirspurnir.
„Ég vona innilega að hringurinn komist til skila. Þess vegna deildi ég þessu. Sonur minn vill mjög gjarnan að hringurinn komist í réttar hendur.“
Hver sá sem telur sig eiga þennan hring eða þekkja til eigandans er beðinn um að hafa samband við Pál Ágúst í síma 888 2600.