Lögregla lýsir eftir Gunnari Svan Björgvinssyni. Síðast er vitað um ferðir Gunnars 24. febrúar síðastliðinn við heimili sitt á Eskifirði. Gunnar er liðlega fertugur að aldri, 186 cm á hæð, grannvaxinn með áberandi sítt brúnt hár.
Héraðsmiðillinn Austurfrétt greindi frá því fyrir tveimur dögum að leit væri hafin að ónafngreindum einstaklingi en að upplýsingar væru af skornum skammti frá lögreglunni.
Gunnar Svan hefur verið búsettur á Eskifirði um nokkra hríð og starfar í nágrenninu en er þó frá Suðvesturlandi.
Þeir er vita um ferðir Gunnars eftir þennan tíma eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 0600 / 444 0635 eða með tölvupósti á netfangið austurland@logreglan.is.