fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Kristín Sif uppgötvaði leyndarmálið: Húðin aldrei verið betri!

Kynning
Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. október 2022 09:00

Kristín Sif fjölmiðlakona finnur fyrir miklum mun á húðinni eftir að hún byrjaði að taka AstaSkin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Sif, fjölmiðlakona hefur tekið AstaSkin frá Saga Natura í nokkra mánuði og finnur fyrir ótrúlegum mun á húðinni sinni. „Ég hef alltaf hugsað vel um húðina mína og hef vandað mig að velja vel í þeim tilgangi að viðhalda heilbrigði og ferskleika húðarinnar eftir því sem ég verð eldri,“ segir Kristín.

„Þegar ég kynntist AstaSkin varð ég mjög fljótt vör við jákvæð áhrif þess. Á haustin hef ég ávallt þurft að auka raka í húðhirðu minni en eftir að ég byrjaði að taka inn AstaSkin þarf ég ekki að spá í því lengur. Þar að auki veitir AstaSkin húðinni minni meiri raka og ljóma. Þetta er án efa eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum í dag þar sem ég fæ þrjú mikilvæg efni fyrir húðina, allt í einni vöru; Kollagen, astaxanthin og klínískt rannsakað seramíð. Ég er svo þakklát að hafa uppgötvað þessa frábæru íslensku vöru og hún mun héðan í frá vera partur af minni daglegu vítamínupptöku.“

Vistvæn og þægileg áskrift

Kristín byrjaði nýlega í áskrift af vörum hjá Saga Natura. „Mér finnst áskriftarleiðin vera algjör snilld. Bætiefnin koma inn um póstlúguna hjá mér mánaðarlega og ég fylli svo sjálfkrafa á áldósirnar. Þetta er ekki bara umhverfisvænt heldur einnig hagkvæmt því ég fæ alltaf 15% afslátt af vörunum svo og fría heimsendingu. Ég er rosalega ánægð með vöruna og mun svo sannarlega ekki sleppa AstaSkin úr vítamínboxinu mínu á morgnana.“

Leyndarmálið á bak við AstaSkin

Sólveig Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Saga Natura, segir að AstaSkin hafi fyrst komið á markað árið 2018. „Leyndarmálið á bak við AstaSkin er einstök blanda af þremur mikilvægum bætiefnum sem styrkja húðina, auk þess sem í AstaSkin séu önnur vítamín eins og A-, C-, D- og E-vítamín sem stuðli öll að bættri húðheilsu,“ segir Sólveig.

Eitt af lykilhráefnunum í AstaSkin er seramíðið Myoceram sem er klínískt rannsakað fæðubótarefni. Náttúrulegt seramíð í húð fólks minnkar alla jafna yfir veturinn og því er mikilvægt að huga vel að lausnum fyrir húðina nú þegar haustið nálgast. Seramíðið í AstaSkin vinnur gegn rakatapi húðarinnar og hjálpar til við að draga úr þurrki húðarinnar. AstaSkin inniheldur einnig astaxanthin sem meðal annars eykur endurheimt, verndar húðina gegn UV-geislum sólar, hrukkur og fínar línur verða grynnri og einnig getur astaxanthin komið í veg fyrir myndun á öldrunarblettum.

Fjölmargar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar víða um heim á áhrifum astaxanthins á heilsu manna, en það er einstaklega öflugt andoxunarefni. Þá er einnig að finna kollagen í AstaSkin, sem er eitt helsta byggingarprótein húðarinnar. Eftir 25 ára aldur fer náttúruleg kollagenframleiðsla í líkamanum að minnka. Rannsóknir benda til þess að inntaka kollagens geti minnkað liðverki ásamt því að hafa góð áhrif á húð, hár og neglur.

Sólveig Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Saga Natura.

Neytendur uppgötvuðu nýja virkni og bólurnar hurfu!

Sólveig segir að AstaSkin sé ein vinsælasta vara Saga Natura og hafa viðskiptavinir verið duglegir að deila sögum sínum um virkni vörunnar. „Það sem við erum meðal annars að heyra er að AstaSkin virki vel á þurra og bólótta húð, styrki húðina í sól, dragi úr þurrkublettum, en áhugaverðustu sögurnar eru hversu vel hún hefur virkað á algengan húðkvilla sem nefnist Keratosis pilaris (KP). Erlendis nefnist þessi kvilli öðru nafni „chicken skin“ og einkennist af smáum upphleyptum bólum sem innihalda uppsafnað keratín. Bólurnar eru stundum með roða og eru yfirleitt á upphandleggjum, vanga og lærum en finnast líka annars staðar á líkamanum.

Þessar hvimleiðu bólur eru arfgengar og í raun mjög algengar, en um einn af hverjum þremur er með einkenni KP og algengið er enn hærra í yngri aldurshópum, frá 12-30 ára. Keratosis pilaris er talið vera afbrigði af eðlilegri húð og angrar fólk yfirleitt ekki, nema af útlitslegum ástæðum. Þeir sem glíma við þetta vandamál upplifa þó oft mikið hugarangur yfir þessu ástandi. Saga Natura hefur gert ítarlega markaðsrannsókn á hvaða meðferðir eru í boði á þessum hvimleiða kvilla og virðast engar meðferðir vera til sem eru varanlegar. Margar hverjar geta verið ansi sársaukafullar eða fela í sér töluvert inngrip og flestar endast þær illa. Kosturinn við AstaSkin er að einungis þarf að muna eftir að taka tvær töflur á dag og vandamálið minnkar umtalsvert eða hverfur alveg.“

Sólveig segir að Saga Natura fái einnig stundum sendar fyrir og eftir myndir frá viðskiptavinum sem hafa verið að kljást við bólur. „Í sumum tilfellum hefur þessum einstaklingum verið ávísað sýklalyf, sem er töluvert inngrip, en þau hafi oft ekki gefið nægilega góðan árangur og þá aðeins í skamman tíma. Um leið og þessir einstaklingar fóru að taka AstaSkin að staðaldri myndaðist jafnvægi í húðinni og bólurnar hurfu nánast alveg. Þetta á við um fólk frá 18 ára aldri af öllum kynjum,“ segir Sólveig.

Saga Natura fær styrk til útrásar á AstaSkin

Hjá Saga Natura starfar öflugt rannsóknar- og þróunarteymi og er markmið þeirra að rannsaka virkni vara Saga Natura í þaula. „Það var mikil viðurkenning fyrir okkur að fá rannsóknarstyrk frá Matvælasjóði, meðal annars í þeim tilgangi að gera heildstæða markaðsúttekt á markhópi AstaSkin erlendis. Einnig höfum við sótt um hugverkaleyfi fyrir okkar sérstöku formúlu sem liggur á bak við AstaSkin,“ segir Sólveig.

Hún bætir við að vinsældir AstaSkin hér á landi hafa styrkt Saga Natura í enn frekari útrás. „Við ætlum okkur stóra hluti fyrir AstaSkin á komandi misserum, rétt eins og við höldum áfram að sækja út með okkar stærstu vöru, SagaPro, sem við seljum nú þegar í 9 löndum við afar góðan orðstír.“

Sólveig telur AstaSkin eiga mikið erindi á alþjóðamarkað. „Fyrir tveimur árum framkvæmdi rannsóknarteymi Saga Natura neytendakannanir á AstaSkin. Í þeirri fyrri tóku einstaklingar með Keratosis pilaris AstaSkin í tvo mánuði. Þarna voru einstaklingar bæði með rubra-afbrigðið sem er oft kallað „strawberry skin“ og hins vegar alba-afbrigðið sem er kallað „chicken skin“. Það fannst greinilegur munur á þessum tveimur hópum. Einstaklingar með KP rubra fundu engan mun á tveimur mánuðum en allir þeir sem voru með KP alba fundu töluverðan mun eftir inntöku AstaSkin. Í kjölfarið var framkvæmd önnur könnun á einungis einstaklingum sem glímdu við KP alba, en sú könnun stóð yfir í sjö mánuði. Niðurstöðurnar úr henni studdu við fyrri niðurstöðurnar. Það tók um tvo mánuði að sjá áhrif AstaSkin á húðina og einkennin minnkuðu með hverjum mánuðinum. Það var því virkilega áhugavert og ánægjulegt að sjá viðbrögð þátttakenda í lok könnunarinnar þegar fyrir og eftir myndir voru skoðaðar, þar sem margir trúðu varla hve munurinn var mikill.“

AstaSkin er selt í öllum helstu matvörubúðum, apótekum og á heimasíðunni saganatura.is

Glæsilegur gjafaleikur

Saga Natura og DV er með glæsilegan gjafaleik í boði. Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt er að skrá þig í pottinn hér að neðan. Dregið er úr vinningum mánudaginn 17. október. Þrír heppnir þátttakendur vinna þriggja mánaða áskrift af AstaSkin frá Saga Natura.

Skilmálar: Með því að taka þátt og senda inn gögn samþykkir þú notkun persónuupplýsinga. Skilyrði fyrir þátttöku er skráning með nafni og símanúmeri sem er einungis notaðar til þess að draga vinningshafa og verður eytt af leik loknum. Gefir þú upp netfang veitir þú Torg ehf leyfi til að senda þér tilkynningar um gjafaleiki auk annarra markpósta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum