fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Áfrýjun Rússa hafnað – Fá ekki að vera með

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 21. september 2022 06:00

Fjöldi lífvarða fylgir Pútín hvert skref. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússland fær ekki að taka þátt í undankeppni Evrópumótsins 2024 og á því ekki möguleika á að komast á lokamótið.

Landslið Rússlands eru í banni frá alþjóðlegum íþróttakeppnum sökum innrásar landsins í Úkraínu.

Dregið verður í undanriðla fyrir EM í Þýskalandi 2024 í næsta mánuði. Drátturinn fer fram í Frankfurt. Öll undankeppnin verður svo leikin á næsta ári.

Rússar áfrýjuðu banni sínu í júlí en í gær var staðfest að henni hafi verið hafnað. Rússland fær ekki að taka þátt.

Hins vegar fær Hvíta-Rússland, sem hefur verið hliðhollt Rússum í innrásinni í Úkraínu, að vera í pottinum þegar dregið verður í undanriðla í Frankfurt.

Íslenska karlalandsliðið verður að sjálfsögðu á meðal þátttökuþjóða í undankeppninni. Liðið freistar þess að komast á sitt annað Evrópumót í sögunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Í gær

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina