fbpx
Fimmtudagur 10.júlí 2025
Pressan

Hvort er ódýrara að fara í sturtu eða bað? Nokkrar spurningar og svör um orkunotkun og kostnað

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 2. apríl 2022 19:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er ódýrara að sjóða vatn í hraðsuðukatli en í potti? Er ódýrara að fara í sturtu eða bað? Þetta eru kannski ekki spurningar sem fólk veltir fyrir sér daglega en kannski er tímabært að fara að hugsa út í þetta nú þegar allt er að hækka í verði. Þá er gott að geta skorið niður á einhverjum vígstöðvum til að mæta auknum útgjöldum á öðrum.

Í nýlegri umfjöllun The Guardian var fjallað um eitt og annað tengt orkunotkun og kostnaði við hana. Meðal annars kom fram að það er ódýrara að hita vatn í hraðsuðukatli en potti. Ástæðan er að ketillinn hitar innan frá og vatnið um leið en potturinn þarf að hitna utan frá og þarf því meiri hita til að hita vatnið. Hraðsuðuketill er því fyrri til að sjóða vatn og þarf minni orku til þess.

Hvað með hleðslutæki, til dæmis fyrir farsíma, sem eru í sambandi þegar ekki er verið að hlaða? Eyða þau rafmagni þrátt fyrir það? Í umfjöllun The Guardian kemur fram að það sé mat British Gas að hægt sé að draga úr heildarraforkunotkun Breta um 23% ef hleðslusnúrur eða hleðslutæki, sem kveikt er á, eru tekin úr sambandi þegar ekki er verið að hlaða. Undir þetta falla einnig raftæki sem slökkt er á með fjarstýringu, til dæmis sjónvörp og hljómflutningstæki. Öll nota þessi tæki rafmagn á meðan. Haft er eftir fulltrúa British Gas að það sé um að gera að taka raftæki úr hleðslu um leið og þau eru fullhlaðin því það spari rafmagn og lengi líftíma rafhlöðunnar.

Hvað varðar það að hita mat upp þá segja sérfræðingar að ódýrara sé að nota örbylgjuofn til þess en að hita matinn á eldavélinni.

Þegar kemur að þvotti segja sérfræðingar að það sé alveg óhætt að þvo föt á undir 40 gráðum. Margir þvottaefnisframleiðendur auglýsi einmitt að þvottaefnin þeirra henti vel til þvotta á lægri hita en 40 gráðum og er þá oft talað um 30 gráður. The Guardian hefur eftir sérfræðingum að bara það eitt að þvo við 30 gráður í stað 40 dragi úr rafmagnsnotkun um 40%.

En er ódýrara að fara í sturtu en bað? Í umfjölluninni kemur fram að í venjulegt bað þurfum 90 lítra af vatni. Venjulegt blöndunartæki í sturtu dæli um 9 lítrum í gegn á mínútu. Það þýði að ef sturtan vari skemur en 10 mínútur þá sé hún væntanlega ódýrari en að farið sé í bað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hélt að þetta væri ókeypis – Fékk reikning upp á tæpar tvær milljónir

Hélt að þetta væri ókeypis – Fékk reikning upp á tæpar tvær milljónir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Svona heldur þú köngulóm frá heimilinu að sögn sérfræðings

Svona heldur þú köngulóm frá heimilinu að sögn sérfræðings
Pressan
Fyrir 6 dögum

Japanir sárir út í Trump eftir að hann líkti árásunum á Íran við kjarnorkuárásina á Hirsoshima

Japanir sárir út í Trump eftir að hann líkti árásunum á Íran við kjarnorkuárásina á Hirsoshima
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju
Pressan
Fyrir 6 dögum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
Pressan
Fyrir 1 viku

„Ég ætla ekki að deyja hér“: Missti útlimi í skelfilegu slysi í túbunni í London – Sögð hafa valdið slysinu með eigin gáleysi

„Ég ætla ekki að deyja hér“: Missti útlimi í skelfilegu slysi í túbunni í London – Sögð hafa valdið slysinu með eigin gáleysi