Hinn pólski Slawek Sobala, hefur það að atvinnu að líkja eftir forseta Rússlands, Vladimír Pútín. Hann fékk til liðs við sig kollega sinn úr eftirhermubransanum, Howard X sem líkir eftir einræðisherranum í Norður-Kóreu, Kim Jong-un, í björgunaraðgerð.
Saman hjálpuðu þeir manni að nafni Umid Isabaev að flýja frá Úkraínu. Umid taldi öryggi sínu ógnað þar sem hann hefur undanfarin ár unnið sem tvífari forseta Úkraínu, Volodimír Zelenskís. Ferill Umids, sem er frá Úsbekistan, hófst þegar mynd af honum í neðanjarðarlest í Rússlandi fór á flug í netheimum og varð upphaf að ferli hans, en hann þykir nauðalíkur forsetanum.
Kim Jong-un eftirherman Howard X hafði samband við Pútín eftirhermuna Salwek eftir að hafa frétt að Umid væri fastur í Kænugarði og ákváðu þeir að aðstoða kollega sinn við flóttann, enda varasamir tímar til að vera tvífari forseta Úkraínu og vera þar að auki staddur í höfuðborginni.
Fengu þeir til liðs við sig aðila úr úkraínska varnarliðinu til að ná að koma Umid með öruggum hætti út úr Kænugarði.
Þann 8. mars flúði Umid í öruggt skjól um 100 kílómetrum frá íbúð hans í Kænugarði og lét svo lítið fara fyrir sér næstu daga, síðan hélt hann áfram ferð sinni með bíl að landamærunum í nágrenni við borgina Lviv. Þar komst hann yfir til Póllands þann 12. mars ásamt öðrum flóttamönnum.
Howard X sagði í samtali við the Daily Star: „Þegar stríðið hófst hugsaði ég til Umid því ég vissi að hann bjó í Úkraínu. Ég hafði samband við hann og sagði honum: „Þú verður að komast þaðan út því guð má vita hvað gerist ef Rússar koma höndum sínum yfir tvífara Zelenskís.“
Umid hafði meðal annars starfað fyrir framleiðsluteymi Zelenskís og hefur hitt forsetan við mörg tilefni. En þegar innrás Rússa hófst, vildi hann koma sér í skjól.
„Kænugarður var án sólarljóss, það snjóaði,“ sagði Umid við Daily Star. „Og á fimm til tíu mínútna fresti heyrði maður í sprengju, það voru gífurleg læti í Kænugarði.“
Howard X segir að í fyrstu hafi verið erfitt að fá fólk til að hjálpa við að bjarga Umid.
„Fólk vildi hjálpa konum og börnum úr landi fyrst, en ekki einhverjum innflytjanda frá Úsbekistan. Þegar hann var kominn að landamærunum héldu starfsmenn honum eftir út af uppruna hans. Hann komst þó í loks gegn og eftir því sem ég hef heyrt þá hlógu landamæraverðirnir. þegar þeir sáu hversu líkur Zelenskí hann er.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Howard X lætur til sín taka með þessum hætti. En hann hjálpaði í fyrra Bruce Lee eftirhermu að komst frá Afganistan. Nú er hann búinn að koma Umid út úr Úkraínu og hefur boðið honum skjól yfir höfuðið.
Slawek sagði í samtali við Daily Star að honum hafi tekist að koma Umid að pólsku landamærunum svo svo til Wroclaw með hjálp frá góðum vinum frá Úkraínu. Þar hafi Slawek tekið á móti Umid og náðist mynd af þeim að fá sér bjór til að fagna.
„Ég kom honum fyrir á hóteli. Svo hvíldi hann sig, svo hittumst við og urðu fagnaðarfundir. Umid þakkaði mér vel fyrir að hjálpa honum að komast frá Kænugarði. Við spjölluðum í þrjá tíma og hann sagði mér frá sjálfum sér og hvað hann hefði haft fyrir stefni. Um kvöldið fórum við á barinn og fengum okkur bjór svo hann gæti slakað á eftir þessa löngu hættulegu ferð.“
Umid mun ætla að halda sig í Póllandi í einhvern tíma og reyna að finna þar vinnu. Slawek segir að saman ætli þeir að reyna að gera satíru til að „berjast gegn stjórn Pútíns.“
„Við vonum að með þessum hætti getum við lagt eitthvað að mörkum til að hjálpa fólkinu í Úkraínu og hjálpa þeim að sigra þetta hræðilega stríð.“