Greinin birtist fyrst á vef kynlífstækjaverslunarinnar Blush.is.
Finnst þér vera kominn tími á að uppfæra trúboðann aðeins? Fyrir marga er þessi stelling vinsælust og mest notuð í svefnherberginu, en eins og með hvað annað gæti verið gaman að brydda aðeins upp á venjurnar.
Þér líður kannski þannig að þig langi til að henda þessarri stellingu í ruslið – svo mikið leið ertu komin/n með á henni. Fólk á það til að festast í vananum, sem síðan á endanum verður leiðigjarnt. Ekki snúa þó algjörlega baki við þessari gömlu og góðu stellingu og hugsaðu þér í staðinn leiðir til að bæta gamalt svo það verður gott aftur. Ekki gleyma því að það er ástæða fyrir því að þessi stelling reynist svona vinsæl meðal margra.
1. Lyftu þér upp
Prófaðu að setja kodda undir mjaðmirnar til að breyta hallanum. Það mun verða til þess að limurinn fer dýpra inn í leggöngin/Endaþarm.
2. Krepptu saman
Klemmdu saman fótunum, það mun verða til þess að hann nær að örva snípinn meira.
3. Knúsist
Annar einstaklingurinn vefur höndum sínum utan um hinn aðilan og dregur líkama hans nær sér, það mun auka nándina.
4. Haltu þér
Annar aðilin grípur um mjaðmir hins og þar með getur þú stjórnað bæði hraða og dýptinni betur.
5. Tvennt í einu
Á meðan þið stundið kynlíf í trúboðastellingunni, getur píku eigandinn nonan notað titrara, egg eða hendurnar á snípinn til að auka unaðinn. Einnig finnst mörgum einstaklingum æði að láta gæla við geirvörturnar á sér á meðan kynlífi stendur.
Flirt frá Reset er fullkomið egg til að nota í trúboða með maka, eggið er hljóðlátt og nett, en hefur þó öflugan titring sem veitir góða örvun á snípinn
6. Augnsamband
Prófaðu að ná augnsambandi og horfa á öll tilfinningalegu viðbrögðin hjá maka – það getur verið rosalega heitt. Sjáðu hvernig makinn nýtur sín við að stunda kynlíf með þér!
7. Prófið að vera föst
Þú getur notað allskonar hluti í þann leik. Hvort sem þið notið handjárn, band, trefill, bindi eða hvaðeina! Það getur verið virkilega kynæsandi þegar annar aðilinn tekur stjórnina og gælir við líkama þinn.
8. Smá flengingar
Sumum finnst það kannski svolítið gróft, en það getur verið kynæsandi að slá aðeins á rassinn á maka þínum til að láta hann vita að þú ert æst/ur.
9. Kyssist meira
Þetta er ein af fáum stellingum sem virkilega greiður aðgangur er að munni maka þíns. Það er svo auðvelt að stela kossum í trúboðanum og það er ekkert sem heitir of mikið kossaflens í kynlífi. Kossar kynda í kolunum!
Sjá einnig: Uppljóstrar leyndarmálinu um hvað felst í SpariTotti