fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Aron Leví biður Adolf Inga afsökunar 13 árum eftir atvikið – „Afsakið hvað þetta kemur seint Adolf, ábyrgðin er öll mín“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 1. febrúar 2022 21:00

Adolf Ingi (t.v.) og Aron Leví Beck.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Leví Beck, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og frambjóðandi til 4.-6. sætis í forvali flokksins fyrir bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar í vor, hefur séð ástæða til að biðja hinn fornfræga fyrrverandi íþróttafréttamann, Adolf Inga Erlingsson, afsökunar á hryssingslegri framkomu sinni í hans garðs í sjónvarpsviðtali eftir lok íshokkileiks árið 2008. Aron var keppnismaður í þeirri íþrótt og hefur ákveðið að taka skautana fram á ný og spreyta sig í íshokkí. Af því tilefni birti hann myndband á Twitter af viðtalinu gamla.

Hinn ungi og fýldi íshokkíleikmaður kom Adolf svo í opna skjöldu með viðbrögðum sínum við spurningu hans að íþróttafréttamaðurinn varð kjaftstopp.

Viðtalið gamla og skrýtna má sjá í tísti Arons hér að neðan:

Aron bætti svo um betur í tísti sem hann birti síðdegis og bað Adolf Inga afsökunar:

„Ég vil nýta tækifærið og biðja Adolf Inga, fyrrum fréttamann RÚV opinberlega afsökunar á hrokafullu viðmóti mínu í viðtali sem hann tók við mig í apríl árið 2008. Afsakið hvað þetta kemur seint Adolf, ábyrgðin er öll mín.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leit af syninum í örfáar mínútur en það var nóg

Leit af syninum í örfáar mínútur en það var nóg
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður