fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Matur

Ein vinsælasta jólagjöfin hjá fyrirtækjum til starfsmanna

Sjöfn Þórðardóttir
Miðvikudaginn 8. desember 2021 12:45

Gjafakortin hjá Hagkaup njóta vinsælda hjá fyrirtækjum í jólagjafir til starfsmanna./Ljósmynd aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnendur fyrirtækja og stofnanna hér á landi eru nú að huga að jólagjöfum til starfsmanna. Matarkörfur með ýmiskonar hefðbundnum jólamat hafa verið vinsælar jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna. Slík gjöf kemur að góðum notum þar sem að matarinnkaup fyrir jólin geta verið kostnaðarsöm. Með aukinni fjölbreytni í matarvali á heimilum getur þó verið vandasamt að velja matargjafir sem að henta ólíkum þörfum heimilismeðlima. Því bregða sífellt fleiri fyrirtæki á það ráð að gefa gjafakort í matvöruverslunum.

„Við höfum séð tugprósenta aukningu í sölu á gjafakortunum hjá Hagkaup síðustu árin, bæði til einstaklinga, fyrirtækja og stofnanna. Með aukinni meðvitund um matarsóun eru fyrirtæki í auknum mæli að velja gjafarkortin í stað hefðbundinna matarkarfa. Með því að gefa kortin þá eru fyrirtæki í raun og veru að halda í hefðina og létta róður heimilanna við innkaup fyrir jólin en í senn að lágmarka sóun og gefa einstaklingum val um hvað þeir vilja hafa í sínu veisluborði. Gjafakort Hagkaups hentar ekki bara sælkeranum heldur einnig þeim sem að vilja gleðja sig með snyrtivöru eða gleðja yngstu heimilismeðlimina með skemmtilegu spili eða leikföngum. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í Hagkaup og ætti því gjafakort að vera gjöf sem að gleður bæði stóra og smáa,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaup.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.08.2025

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð
Matur
19.07.2025

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi
Matur
16.07.2025

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi
Matur
18.04.2025

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa
Matur
17.04.2025

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum
Matur
05.02.2025

„Það vantar meiri kærleik!“

„Það vantar meiri kærleik!“
Matur
23.01.2025

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn