fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Verða jólatónleikar? Vonast til að geta haldið stórtónleika í lok nóvember

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. október 2021 09:00

Ætli Baggalútur geti blásið til jólatónleika í ár? Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, kynnti áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða í gær. Það vekur vonir í brjóstum margra um að nú verði hægt að fara á jólatónleika, ekki bara sitja heima í stofu og njóta þeirra í sjónvarpinu.

Morgunblaðið hefur eftir Jóni Diðriki Jónssyni, forstjóra Senu Live, að hann fagni afléttingunum og að hann vonist til að sóttvarnaaðgerðum verði aflétt til fulls eftir fjórar vikur. „Fyrir okkur er þetta stórkostlegt skref og ég er ekki að gagnrýna að þetta sé tekið í skrefum. Viðburðir verða einfaldari og ódýrari í framkvæmd. Þetta hefur mest að segja fyrir viðburði en í kvikmyndahúsum er þetta aðallega einföldun í ferlum,“ er haft eftir honum.

Fyrirhugað er að halda Andrea Bocelli tónleika í Kórnum í lok nóvember og að þar verði allt að 7.000 gestir. Jón sagði að erfitt hafi reynst að skipta þessum fjölda upp í 500 manna hólf með tilheyrandi aðbúnaði eins og reglur gerðu ráð fyrir þar til tilkynnt var um afléttingu sóttvarnaaðgerða.

„Það eru fyrirhugaðir tónleikar í kringum jólin sem við höfum verið að skipuleggja upp á von og óvon, sem við vitum núna að við getum haldið almennilega. Þetta tryggir að við getum haldið það sem við vorum að vonast til að geta haldið án vandkvæða. Við vonumst til að, ef þetta gengur ágætlega, það verði aflétt að fullu eftir fjórar vikur,“ sagði hann einnig.

Samkvæmt tilkynningu ríkisstjórnarinnar þá verður sóttvarnaaðgerðum aflétt að fullu 18. nóvember ef það tekst að halda faraldrinum niðri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump