Fjártæknifyrirtækið YAY flutti á dögunum skrifstofur sínar í Grósku, hús hugmynda og nýsköpunar í Vatnsmýrinni. YAY er markaðstorg fyrir rafræn gjafabréf frá fjölda fyrirtækja í gegnum smáforrit sem nefnist YAY.
„Við erum afar ánægð að vera flutt í Grósku í Vatnsmýrinni sem hýsir kraftmikið samfélag sköpunar og frumkvöðlastarfs,“ segir Ari Steinarsson framkvæmdastjóri YAY. „Það er mikið í gangi hjá okkur og það skemmtilega núna er að það hefur aukist mjög mikið að fyrirtæki eru að gleðja starfsmenn sína með skemmtilegum sumargjöfum með tilkomu stafrænnar dreifingar á YAY gjafabréfunum. Fyrirtækin eru að gefa allt frá ís, út að borða, kaffi, bakarí að ónefndum gjafabréfum með gourme mat til að skella á grillið. Óhætt að segja að þetta kemur okkur sannarlega í sumarskap,“ segir Ari ennfremur.
YAY hefur meðal annars séð um Ferðagjöfina fyrir íslenska ríkið sem Íslendingar hafa nýtt sér vel á ferðalögum innanlands frá því síðastliðið sumar og gengið framar vonum. Fyrirtækið hefur vaxið mjög á stuttum tíma og selur nú gjafabréf frá yfir 140 fyrirtækjum. Mastercard valdi nýverið YAY, fyrst íslenskra fyrirtækja, til að taka þátt í sérstöku verkefni sem heitir Mastercard Lighthouse.