Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um mann sem var að reyna að komast inn í ólæstar bifreiðar í vesturbænum. Meintur gerandi var handtekinn við vettvang og fluttur á lögreglustöð. Málið er í rannsókn.
Í Hafnarfirði slasaðist maður á fæti í vinnuslysi á ellefta tímanum. Ekki er talið að um alvarleg meiðsl sé að ræða. maðurinn var fluttur á slysadeild.
Í Kópavogi fór þjófavarnarkerfi í fyrirtæki í gang á öðrum tímanum í nótt. Svo virðist sem farið hafi verið inn í húsið en málið er í rannsókn.
Á tólfta tímanum var ökumaður handtekinn en hann var töluvert ölvaður og réttindalaus að auki. Á öðrum tímanum í nótt var ökumaður handtekinn grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Við nánari skoðun á málinu kom í ljós að maðurinn var ekki sá sem hann sagðist vera. Þar með bættust kæruatriði við mál hans.