Einstök blanda lífrænna næringarefna í CC Flax frá Lifestream stuðlar að heilbrigðri hormónastarfsemi, minnkun á bjúg, bættri líðan og betri heilsu almennt. Þá hjálpa lignans og trönuberja- fræin við að losna við aukakílóin og halda þeim í skefjum.
Ritrýndar vísindarannsóknir sýna að konur með mikið af lignans í blóðinu hafa að meðaltali um 8,5 kílóum minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið lignans. Einnig sýnir fjöldi rannsókna fram á að lignans gefur frábæran árangur við verkjum og vanlíðan vegna hormónaójafnvægis, fyrirtíðaspennu kvenna á öllum aldri, við svefnvandamálum, skapsveiflum og svitaköstum. Lignans stuðlar að hormónajafnvægi á heilbrigðan hátt. Þá er einnig talið að lignans geti seinkað breytingaskeiðinu hjá mörgum konum. Margar konur tala um stórbætta tilfinningalíðan og betri líkamlega líðan, sérstaklega kringum blæðingar og að losna við tíðaverki og aðra verki tengda þeim.
Lignans er einungis að finna innan í trefjahýði hörfræja og gagnast líkamanum ekki þegar það kemur úr heilum fræjum eða hörfræjaolíu. CC Flax er því eitthvað sem við ættum flest, og þá sérstaklega konur, að íhuga að taka inn að staðaldri.
Hörfræin sem notuð eru í CC Flax frá Lifestream eru lífrænt ræktuð og innihalda meira magn af lignans en hefðbundin hörfræ. Fjöldi rannsókna sýnir fram á mikla virkni innihaldsefna CC Flax við að draga úr aukakílóum en dæmi eru um að konur hafi náð af sér mörgum kílóum, upp í 20 kíló, bara með því að strá einni teskeið af CC Flax út á til dæmis AB mjólk, grautinn eða í vatn á morgnana. Þá dregur neysla CC Flax úr fitusöfnun og með reglulegri inntöku má fækka kílóum fljótt og fyrirhöfnin við að halda sér í kjörþyngd verður minni.
Trönuberjafræ og bjúgur
CC Flax frá Lifestream inniheldur einnig lífræn mulin trönuberjafræ, en fjöldi rannsókna sýnir fram á virkni þeirra við að draga úr og fyrirbyggja vökvasöfnun. Mulin fræin eru mun öflugri en hreinn safi úr berjunum en sýnt hefur verið fram á að trönuber styðji heilbrigðara tannhold og verji slímhúð, blöðru og þvagkerfi gegn sýkingum. Árangur finnst fljótt og bjúgur rennur af líkamanum.
Þörungakalk og steinefni
Að auki inniheldur CC Flax þörungakalk sem er lífrænt vottað og vegan, auk kalksins inniheldur kalkþörungurinn steinefni eins og magnesíum, joð og járn. Skortur á kalki getur verið lúmskur og getur lýst sér í einbeitingarskorti, depurð, kvíða, svefnvandamálum, sinadrætti í vöðum og húðþurrki. Kalk er eins og flestir vita afar mikilvægt fyrir tennur, tannhold, bein, húðina, hár og neglur og taugaboð vöðva. Dagskammtur af CC Flax veitir 33% af dagsþörf á kalki. Þess má geta að regluleg inntaka á kalki dregur úr fitusöfnun þar sem kalk getur bundið allt að 6 kíló af fitu í meltingarveginum á ári samkvæmt rannsóknum og stuðlar þannig að kjörþyngd, jafnvægi og vellíðan.
Alfa og ómega-3
Að lokum inniheldur CC Flax ÓMEGA-3 ALA fitusýrur sem koma úr plöntum. Ómega-3 styður, eins og þekkt er, við heilbrigði hjartans og er mikilvægt fyrir starfs- og lærdómshæfni heilans. Ómega-3 eflir ónæmiskerfið og lækkar kólesterólfitu í blóði. Það hægir á hrörnun líkamans og húð verður frísklegri og mýkri.
CC Flax frá Lifestream:
CC Flax frá Lifestream er 100% lífrænt og inniheldur ekkert glúten eða aukaefni. Það inniheldur enn fremur engin erfðabreytt efni og hentar grænmetisætum. Ráðlagt er að neyta einnar kúfaðrar teskeiðar á dag af CC Flax. Þá er hægt að setja eina kúfaða teskeið út á t.d. AB mjólk, grautinn eða í vatn/safa fyrripart dags, en bragðið er mjög gott.
Fæst í flestum apótekum, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Melabúðinni, Grænni heilsu og netsölu www.celsus.is