

Karim Benzema framherji Real Madrid elskar bíla og er duglegur að versla sér nýtt tryllitæki. Framherjinn frá Frakklandi hefur um langt skeið verið einn öflugasti sóknarmaður í heimi.
Benzema hefur lengi verið í herbúðum Real Madrid og þénað vel. Í vikunni sem leið keypti Benzema sér nýjan bíl, sá nýjasti er af gerðinni Bugatti Chiron. Bíllinn kostaði litlar 433 milljónir samkvæmt erlendu fjölmiðlum.
Bíllinn fer frá 0 upp í 100 á 2,5 sekúndum.

Í flotanum hjá Benzema eru líka fleiri glæsikerrur en þar má nefna Mercedes Benz-SLR, Ferrari 458 Spider, Rolls Royce Wraith, Lamborghini Gallardo, Mercedes-AMG Classe G63, Bugatti Veyron og svo fær hann nýjan Audi á hverju ári frá Real Madrid.
Bílafloti Benzema er metinn á 6 milljónir punda eða rúman milljarð íslenskra króna.





