fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Ásmundur Helgason heldur jólin á Spáni – Slátrarinn með hamborgarhrygg og hangikjöt fyrir Íslendingana

Erla Hlynsdóttir
Fimmtudaginn 24. desember 2020 15:12

Ásmundur Helgason ver jólunum á Spáni með konunni sinni, Elínu Ragnarsdóttur. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Helgason, bókaútgefandi og eigandi Gráa kattarins, ver jólunum á Spáni þetta árið. Helst vildi hann fá barnabörnin til sín um jólin en hann yrði þó fullkomlega sáttur við að fá nýju bókina hennar Vilborgar Dagbjartsdóttur í jólagjöf, nú eða eitt stykki veiðileyfi.

Hvernig verður aðfangadagskvöld hjá þér?

Aðfangadagskvöld verður ansi sérstakt í ár hjá okkur Ellu. Við erum á Spáni og fjarri allri fjölskyldunni, nema hvað elsta dóttirin kom blessunarlega til okkar, til að vera um jólin. Þannig að við verðum bara þrjú saman.

Hvað borðar þú í kvöld?

Þar sem við erum á Spáni þá var ætlunin að vera með andalæri confit eða eitthvað álíka í jólamatinn, brjóta upp hefðina. En svo fréttum við af slátraranum í Torrevieja. Við  tókum okkur því til og keyrðum í tvo tíma (í aðra áttina) til þess að komast í góssið sem sá góði maður býður upp á. Slátrarinn hefur sem sagt hamborgarhrygg og hangikjét sérstaklega á boðstólnum fyrir alla þá Íslendinga sem eru hér suður frá. Það verður því spennandi að sjá hvernig sá hryggur smakkast.

Með hryggnum verðum við með innbakað grænmeti, okkar útgáfu af Waldorf salati og rauðkál. Við skiptum svo jólaölinu út fyrir gott rauðvín úr héraði. Eftirrétturinn verður heimabökuð baka með jarðarberjum og súkkulaði sem verður toppað með þeyttum rjóma.

Hangikjetið á jóladag verður hins vegar borið fram á óhefðbundinn hátt; það verður nginn uppstúfur og engar kartöflur heldur ávextir og ber, líka úr héraði (appelsínur, granatepli, vínber, döðlur, kakí og fleira gott). Svona bakki eins og hún Nanna Rögnvaldar hefur kennt okkur að gera.

Verður þetta ólíkt fyrri aðfangadagskvöldum?

Jólin í ár verða því ansi hreint ólík fyrri aðfangadagskvöldum. Við erum venjulega með allt of stórt jólatré, sem þó sést varla í fyrir pökkum, alla fjölskylduna og mikið tilstand, svona eins og flestir Íslendingar. Núna er jólatréð lítið og lágt, gervitré úr svokallaðri kínabúð. Við keyptum tré með áföstum ljósum nema illu heilli er bara ein stilling á blikkinu; tryllt ljósasjó.

Hvað langar þig mest að fá í jólagjöf?

Hvað varðar jólagjöfina sem mig langar allra mest í þá væri það að fá afakrakkana hingað yfir jólin en það er víst algerlega vonlaust. Í raunheimum þá væri ég einna helst til í að fá góða bók, til dæmis bókina hennar Vilborgar Davíðsdóttur Undir Yggdrasil – já, og kannski eitt veiðileyfi. Þá væri ég fullkomlega sáttur.

Jólatréð góða með ljósasýningunni. Mynd/aðsend

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Í gær

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi