fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Allt er fertugum fært: Helgi Valur gefst ekki upp þrátt fyrir ljótt fótbrot

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 19. nóvember 2020 20:00

Helgi Valur MYND/ERNIR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Valur Daníelsson, leikmaður knattspyrnuliðs Fylkis, meiddist illa í leik með liðinu í sumar og óttaðist að ferillinn væri búinn. Stuðningur félagsins og löngunin til að snúa aftur á völlinn varð til þess að leikmaðurinn skrifaði undir nýjan samning á dögunum.

Árið 2015 hafði Helgi Valur Daníelsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril í atvinnumennsku. Fljótlega fór löngunin til að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn að gera vart við sig. Íslandsheimsókn í kringum jólin 2017 átti eftir að breyta ýmsu.

„Þegar ég var hættur þarna 2015 var ég bara alveg búinn að ákveða að nú væri þetta komið gott. Ég var á Íslandi um jól og áramót 2017 og spilaði fótbolta með pabba og bróður mínum með OldBoys félaginu hjá Fylki milli jóla og nýárs. Þar voru menn
að spila sem voru að vinna í kringum Fylki. Ég minntist svona á að ég væri farinn að fá löngunina til að komast aftur á knattspyrnuvöllinn og þá fóru hjólin að snúast.“
Helgi prófaði að mæta á æfingar hjá Fylki í febrúar 2018 og ákveðið var að semjavið hann. „Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis á þeim tíma, ákvað að gefa þessu séns. Ég byrjaði að æfa á fullu eftir þriggja ára pásu og fann það strax að áhuginn var enn til staðar. Ég fann í kjölfarið vinnu hér heima og við fjölskyldan fluttum svo heim til Íslands.“

Hélt að ferillinn væri búinn
Helgi spilaði tuttugu leiki með liðinu í efstu deild tímabilið 2018-2019 og hóf sitt annað tímabil með liðinu þegar hann meiddist illa í leik Fylkis og Gróttu í júní. „Löppin á mér brotnaði bæði fyrir ofan ökkla og rétt fyrir neðan hné. Lýsir sér eiginlega þannig að það fór biti úr leggnum. Þegar ég meiddist, þá vissi ég ekki strax hversu alvarleg meiðslin voru. Ég fann að fóturinn var næstum því alveg brotinn í tvennt og þá fór ég í smá panikk og hugsaði mikið út í það næstu klukkustundirnar að ferill minn í knattspyrnu gæti verið búinn.“

Símtal sem Helgi fékk á spítalanum átti þó eftir að hvetja hann áfram og veita honum von. „Forráðamenn Fylkis hringdu stuttu eftir atvikið og sögðust vera tilbúnir til að semja við mig aftur fyrir næsta tímabil, þrátt fyrir að vita ekki með vissu hversu alvarleg meiðslin voru. Félagið hefur alltaf sýnt mér stuðning.“

Helgi var sendur í aðgerðsem heppnaðist vel og fór síðan fljótlega að setja sér markmið til að geta snúið aftur á knattspyrnuvöllinn. „Ég fór bara á fullt í endurhæfingu með mín markmið og var einbeittur að því að komast aftur á völlinn. Endurhæfingin hefur gengið vel hjá mér, ég var farinn að geta verið aðeins með á æfingum áður en allt var flautað af vegna COVID-19 og horfði á leiki með Fylki og fann það hversu leiðinlegt var að taka ekki þátt, það hvatti mig áfram.“

Aldurinn skipti minna máli
Helgi verður fertugur í júlí á næsta ári en það telst vera hár aldur fyrir knattspyrnumann, það er þó ekki eitthvað sem Helgi hugsar út í. „Aldurinn skiptir minna máli en margir halda. Ég hef pottþétt haft gott af því að taka þessi þrjú ár í pásu frá boltanum milli 2015 og 2018. Þetta er stanslaust álag á líkamann að vera í boltanum. Ég náði kannski að lengja ferilinn aðeins með þessari pásu og á þá kannski eitthvað inni.“

Hann telur að það hafi orðið miklar framfarir í þessum málum í knattspyrnuheiminum. „Það er komin mikil þekking í kringum endurhæfingu, sjúkraþjálfun og æfingaálag í knattspyrnuheiminum, menn eru farnir að geta spilað lengur. Ég held að flestir íslenskir knattspyrnumenn sem eru að hætta fyrr en ég séu ekki að gera það vegna þess að þeir geti ekki spilað lengur. Menn eru í öðrum vinnum og það er margt annað í kringum fótboltann sem hefur áhrif.“

Kári Árnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, sé gott dæmi um knattspyrnumann sem spilar á háu getustigi þrátt fyrir að vera 38 ára. „Kári er bara einu ári yngri en ég og hann lítur alltaf jafn vel út á velli. Ég held mér hraustum og ég finn ekki mikinn mun á mér milli ára. Það skiptir miklu máli að æfa vel og halda sér heilum. Ég tek bara eitt ár í einu.“

Ætlar sér byrjunarliðssæti
Helgi skrifaði undir nýjan samning við Fylki á dögunum og er bjartsýnn á framhaldið hjá Fylki. „Við erum með flottan hóp og marga unga og efnilega leikmenn, liðið stóð sig vel í sumar og var í Evrópubaráttu. Stjórn og þjálfarar félagsins telja að
ég geti hjálpað liðinu á næsta tímabili. Ég ætla mér ekkert að vera bara í kringum þetta lið, ég ætla að keppa um sæti í byrjunarliðinu og hjálpa því að ná sínum markmiðum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“