„Ný bók eftir Elísabetu Jökulsdóttur kemur út á föstudag 15. Desember, ljóð um mömmu hennar sem dó í maí síðastliðnum.“
Þetta kemur kemur fram í kynningartexta frá höfundi. Í bókinni yrkir Elísabet um Jóhönnu Kristjónsdóttur, rithöfund og blaðamann. Dauðinn í veiðarfæraskúrnum er 24 bók Elísabetar sem hefur gefið út ljóð, örsögur, leikrit og skáldverk. Bókin fæst í Eymundsson og fastlega má búast við að Elísabet muni standa í Melabúðinni og selja verk sitt þar líkt og síðustu ár.
Í kynningartexta segir enn fremur:
Það er einsog þegar skáldskapurinn er annars vegar, ljóðin hafa dýpri merkingu, kannski missti hún mömmu sína löngu fyrr, en reynir að toga í minningarnar og tjá ást sína. Það eru tvær eða þrjár raddir að segja söguna í bókinni, þar á meðal persóna Jóhönnu, Frúin á neðri hæðinni, sem varð fræg og vinsæl á Feisbók síðu hennar.