Borgarleikhúsið hefur sent frá sér fréttatilkynningu í tilefni frétta í dag um launamál stofnunarinnar, en starfsmenn í minna en 45% starfi fengu ekki greidd út laun sín um síðustu mánaðamót. Hefur Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, farið hörðum orðum um Borgarleikhúsið vegna þessa.
Í tilkynningu frá VR er þess krafist „að Borgarleikhúsið greiði starfsmönnum sínum í undir 45% starfshlutfalli tafarlaust umsamin laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamninga. Borgarleikhúsið hefur ekki greitt laun fyrir aprílmánuð til starfsmanna sinna sem eru í minna en 45% starfshlutfalli.“
Fréttablaðið ræddi málið við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og er hann mjög harðorður í garð Borgarleikhússins. Segir hann leikhúsið vísa í lög um fiskvinnslu og aflabrest í þessu máli. „Þau ætla sér að henda þessu starfsfólki út eins og gólftuskum til þess að komast hjá því að greiða þeim þau laun sem þau eiga rétt á að fá. Þá þarf einfaldlega að segja upp og borga uppsagnarfrest en ekki henda fólki út sem er að reiða sig á þessar greiðslur,“ segir Ragnar Þór við Fréttablaðið.
Í tilkynningu frá leikhúsinu sem Pétur Rúnar Heimisson markaðsstjóri undirritar segir að leikhúsið sé tekjulaust og hafi neyðst til að fella niður allar sýningar vegna kórónuveirufaraldursins. Leikhúsið fái, ólíkt öðrum fyrirtækjum sem hafa orðið að loka vegna faraldursins, enga styrki til að vega upp á móti tekjufallinu. Tilkynningin er eftirfarandi:
„Þær samkomutakmarkanir sem eru við lýði vegna kórónuveirufaraldursins hafa gert það að verkum að Borgarleikhúsið hefur neyðst til að fella niður allar sýningar ótímabundið. Félagið hefur því verið tekjulaust og útlit er fyrir að svo verði áfram um nokkurt skeið.
Áhrif samkomutakmarkana á rekstur Borgarleikhússins eru af sama meiði og hjá fyrirtækjum sem gert var að hætta starfsemi enda ómögulegt að halda áfram sýningum. Borgarleikhúsið á hins vegar ekki rétt á sérstökum styrkjum til að mæta því tjóni sem orðið hefur því starfsemi þess fellur ekki undir sérstök úrræði vegna fyrirtækja sem gert var að loka starfsemi sinni.
Félagið hefur reynt að bregðast við hinum óviðráðanlegu aðstæðum með því að nýta sér úrræði stjórnvalda, m.a. hlutabótaleiðina. Á vegum ríkisvaldsins standa Borgarleikhúsinu engin úrræði til boða að koma til móts við þá starfsmenn sem ekki falla undir úrræðið. Fyrirtækið var því nauðbeygt til að fella umrædda starfsmenn tímabundið af launaskrá með vísan til 3. gr. laga nr. 19/1979 sem kveður á um svokallaðar „force majeure“ aðstæður. Það ætti varla að orka tvímælis að sú staða sem Borgarleikhúsið er í vegna samkomutakmarkana teljist til óviðráðanlegs áfalls sem hafi heimilað því að fella starfsfólk sitt af launaskrá með vísan til greinarinnar. Starfsfólkið ætti því með réttu að eiga rétt til atvinnuleysisbóta á meðan á ástandinu stendur.
Borgarleikhúsið vonast til að geta hafið starfsemi sem fyrst en það er því miður ekki í höndum þess. Borgarleikhúsið mun sækja fram um leið og kostur er og vonandi njóta starfskrafta alls síns góða fólks áfram.“