fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Rúmum 80 milljónum króna verður varið í að fjölga vinnusamningum öryrkja

Auður Ösp
Þriðjudaginn 12. september 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæpum 270 milljónum króna verður varið til aukinna verkefna á næsta ári sem eiga að styðja við atvinnuþátttöku fólks sem stendur höllum fæti á vinnumarkaði, líkt og fram kemur í fjárlagafrumvarpinu. Til að mynda verður rúmum 80 milljónum króna varið í að fjölga vinnusamningum öryrkja og er stefnt á að fjölga þeim úr 750 í 1.150 árið 2020 samkvæmt ríkisfjármálaáætlun.

20 milljónir króna eru merktar Vinnumálasatofnun til að efla þjónustu við fatlaða atvinnuleitendur og 75 milljónum króna verður varið til þess að lengja það tímabil sem heimilt er að greiða fólki endurhæfingarlífeyri. Þá verður um 90 milljónum króna verður varið til þess að undirbúa innleiðingu starfsgetumats eftir því sem það á við.

Fjölgun vinnusamninga

Þá kemur fram að almenn þátttaka á vinnumarkaði sé talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt.

„Mikilvægt er því að sem flestir geti verið virkir þátttakendur á vinnumarkaði án tillits til fötlunar eða skertrar starfsgetu en virkni í samfélaginu, þar með talið á vinnumarkaði, er einnig liður í auknum lífsgæðum. Af hálfu félags- og jafnréttismálaráðherra er því lögð þung áhersla á að tryggja nægjanlegt fjármagn til að unnt sé að veita þeim sem heltast úr lestinni af vinnumarkaði snemmbæra aðstoð til að koma í veg fyrir langvarandi fjarveru á vinnumarkaði.“

Áfram er ráðgert að veita fólki svigrúm til að leita sér að vinnu í þrjá til sex mánuði áður en við tekur einstaklingsmiðuð ráðgjöf starfs- og námsráðgjafa hjá Vinnumálastofnun. Að þeim tíma liðnum er gert ráð fyrir öflugri ráðgjöf þannig að fólk verði komið með starf við hæfi, í nám eða með starfsþjálfunarsamning innan við níu mánuði frá því það leitaði fyrst til Vinnumálstofnunar. Áhersla er jafnframt lögð á mikilvægi þess að atvinnutengd starfsendurhæfing skili þeim árangri að einstaklingar geti aftur orðið virkir á vinnumarkaði eða hafið nám að henni lokinni. Aukið fé í ráðgjöf Vinnumálastofnunar og fjölgun vinnusamninga öryrkja miða að þessu marki.

„Við eigum að leggja kapp á að skapa fötluðu fólki og öllum þeim sem af einhverjum ástæðum eru með skerta starfsgetu fleiri tækifæri til virkni í samfélaginu. Það er einnig mikilvægt að atvinnurekendur leggi sitt af mörkum í þessu skyni og sýni sveigjanleika hvað þetta varðar eins og kostur er“ segir Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun