fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Skipa átakshóp um úrbætur eftir fárviðrið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. desember 2019 12:13

Mynd úr Keflavík frá síðasta óveðri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, í framhaldi af fárviðrinu sem gekk yfir landið 10. og 11. desember, skipan starfshóps fimm ráðuneyta sem falið er að meta hvaða aðgerðir séu færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum til að tryggja að slíkir grunninnviðir séu sem best í stakk búnir til að takast á við ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.

Til viðbótar við öryggi í raforku og fjarskiptum mun hópurinn skoða samgöngur, byggðamál og dreifikerfi RÚV.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Er það mat ríkisstjórnarinnar að öryggi í þessum samfélagslegu innviðum lúti að þjóðaröryggi. Í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, nr. 26/148, frá 11. júní 2018, er kveðið á um að flutningskerfi raforku sé hluti af grunninnviðum samfélagsins, með sambærilegum hætti og samgöngu- og fjarskiptainnviðir, og ein af mikilvægum forsendum fjölbreyttrar atvinnu- og byggðaþróunar.

Starfshópurinn mun beina athygli sinni sérstaklega að afhendingaröryggi raforku. Þannig verður kallað eftir skýrslum og greiningum af hálfu Landsnets og dreifiveitna á því tjóni á flutnings- og dreifikerfi raforku sem varð dagana 10. og 11. desember, hvernig fyrirtækin voru undirbúin, hvernig unnið var í samræmi við fyrirliggjandi viðbragðsáætlanir fyrirtækjanna, sem og hvað hefði betur mátt fara.

Starfshópnum er falið að greina upplýsingar og koma fram með tillögur um úrbætur sem geta eflt flutnings- og dreifikerfi raforku þannig að það geti betur mætt slíkum atburðum og þar með verði unnt að lágmarka það samfélags- og efnahagslega tjón sem hlýst af langvarandi og víðtæku rafmagnsleysi á tilteknum landsvæðum. Hluti af vinnu starfshópsins er jafnframt að leggja mat á tiltækt varaafl í landinu við slíkar aðstæður og stýringu þess. Jafnframt er starfshópnum falið að taka til umfjöllunar og úrvinnslu þær tillögur sem liggja fyrir um einföldun leyfisveitingarferla að því er framkvæmdir í flutningskerfinu varðar.

Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, mun leiða vinnu starfshópsins. Miðað er við að hann skili tillögum sínum fyrir 1. mars 2020.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“
Fréttir
Í gær

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“