fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Kynning

Dýrin um áramót

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 27. desember 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

  • Hafðu dregið fyrir hjá dýrinu
  • Vertu með útvarp eða sjónvarp í gangi
  • Vertu með dýrinu ef hægt er
  • Reyndu að draga athygli gæludýrsins að öðru en flugeldum

Dýrin um áramót

Nokkur atriði er gott að hafa í huga þegar kemur að gæludýrunum okkar um áramót. Fæstum dýrum er sérlega vel við flugelda og því er gott að vera búin að sjá hvað við getum gert til þess að létta þeim lífið. Best er að tryggja öryggi allra dýra eins og hægt er dagana í kringum áramótin, algengt er að sprengt sé á öllum tímum dags og því mikilvægt að vera viðbúin.

Ef hægt er að halda köttum inni þessa daga er það heppilegast.

Viðraðu hundinn í taumi til þess að minnka líkurnar á því að hann stökkvi frá þér í hræðslu við flugelda, ef þú vilt veita hundinum aðeins meira frelsi leggjum við til að hann sé hafður í löngum taumi eða t.d. sporalínu.

Þegar nálgast gamlárskvöld þurfum við sem eigendur að hugsa út í öryggi dýranna, þau þurfa að vera í öruggu rými þar sem ekki er hætta á að þau sleppi út þegar umgangur er um heimilið. Best er ef dýrið getur verið í herbergi þar sem heyrist lítið inn (og jafnvel án glugga þannig að blossarnir sjáist ekki heldur) og ef hægt er að við séum með dýrinu. Munum að fara snemma út með hundana að pissa fyrir nóttina, en frábær tími til þess er þegar skaupið er í gangi, þá eru afar fáir að skjóta upp.

Hvað get ég gert til að leiða athyglina frá látunum?

  • Bjóddu uppáhaldsnagdótið
  • Bjóddu hundinum eða kettinum Kong-leikfang sem er fyllt með gómsætri fyllingu. Kong má setja í frystinn til þess að það taki lengri tíma að veiða fyllinguna upp úr
  • Gefðu gott nagbein (ekki eldað bein)

Hvað ef þetta dugir ekki til?

Sum dýr eru einfaldlega of hrædd við flugelda til þess að það dugi að reyna beina athygli þeirra annað. Fyrir þau dýr eru til vörur sem hafa slakandi eiginleika án þess að virka sljóvgandi.

Sanal Relax-töflur.

Við höfum góða reynslu af Sanal Relax-töflum, en þær eru með jurtum sem hafa þekkta slakandi virkni fyrir hunda, ketti og nagdýr. Best er að byrja gefa þær 2–3 dögum fyrir gamlárskvöld til þess að hámarka virknina.

Canosept- og Felisept-lyktarefni.

Eins er hægt að fá Canosept- og Felisept-lyktarefni sem hefur slakandi áhrif, það kemur þá í spreyformi, í hálsól eða í lyktardreifara í innstungu. Eins og með töflurnar næst besta virknin þegar notkun hefst fyrir mesta stressið.

Ef hundurinn eða kötturinn hefur sýnt viðbrögð sem einkennast af ofsahræðslu fyrir áramót geta dýralæknar einnig ávísað róandi lyfjum, en best er að vera tímanlega í sambandi við dýralækni enda opnunartími dýralæknastofa takmarkaður um jól og áramót.

Eitthvað er um hunda sem ekki kippa sér upp við lætin og ljósin, en við minnum eigendur þeirra líka á að betra er að setja öryggið á oddinn og að hafa þá líka inni, enda geta flugeldar flogið aðra leið en ætlað er.

Nánari upplýsingar á vefsíðu Gæludýr.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum