Tímaritið The Economist birtir eina af sínum bráðsnjöllu forsíðum vegna kosninganna á Bretlandi á fimmtudaginn. Við sjáum þarna Boris Johnson og Jeremy Corbyn fremst eins og dapra snjókarla. Leiðarahöfundur Economist dregur ekki dul á að blaðinu finnist báðir kostirnir beinlínis skelfilegir.
Blaðið lýsir svo yfir stuðningi við Frjálslynda demókrata. Ekki endilega vegna þess að þeir séu svo frábærir, heldur sökum þess að hinir kostirnir séu svo vondir. En gengi Frjálslyndra demókrata hefur farið dvínandi. Leiðtogi þeirra, Jo Swinson, hefur ekki átt góða kosningabaráttu. Verkamannaflokkurinn hefur aðeins sótt í sig veðrið en allt virðist stefna í yfirburðasigur Íhaldsflokksins og Boris Johnson.