fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Engilberts hönnun: Glænýjar og fallegar gjafavörur halda nafni listarinnar á lofti!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 11. nóvember 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau Hjörtur og Greta Engilberts hanna gullfallegar gjafavörur, töskur, slæður, kerti, sérvíettur, tækifæriskort og margt fleira undir hönnunarmerkinu Engilberts hönnun. „Greta er dótturdóttir listamannsins Jóns Engilberts og langaði okkur að koma list hans á framfæri við almenning með gjafavörum og fleiru með áprentuðum teikningum og málverkum eftir hann, en Jón er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Okkur langaði að halda nafni Jóns á lofti og kynna list hans utan listasafnanna. Með þessum hætti eru verk hans ávallt sýnileg en ekki eingöngu þegar verkin eru í sýningu á listasöfnunum,“ segir Hjörtur Sólrúnarson.

Hver var Jón Engilberts?

Listamaðurinn Jón Engilberts (1908–1972) var og er þekktur fyrir einstaklega djarfan en jafnframt fallegan stíl. Í grein Jóns Özurar Snorrasonar um listamanninn segir að verkin einkennist af sterku og andstæðuríku litrófi í anda fígúratífs expressjónisma. Jón var  brautryðjandi í grafíklist hér á landi og einn stofnenda Íslenskrar grafíkur árið 1954. Verk hans eru þó unnin í afar fjölbreytta miðla og meðal annars eru til eftir hann vatnslitaverk, dúk- og tréristur, málverk, blýants- og blekteikningar og margt fleira.

Listamaður af lífi og sál.

Jón hafði fulla trú á grafíklistinni og taldi hana henta betur en önnur listform til árangurs, þar sem hún byggi yfir tjáningarformi ádeilunnar ásamt því að vera seld á viðráðanlegu verði. En þessi hugmyndafræði Jóns er einmitt það sem Greta og Hjörtur vilja halda á lofti með vörulínu sinni, Engilberts hönnun. „Það er einfaldlega stefna hjá okkur að bjóða íslenska hönnun á þannig verði að sem flestir geti haft efni á henni,“ segja þau Greta og Hjörtur.

Skemmtileg tækifæriskort.

Fallegar og menningarlegar jólagjafir

Greta og Hjörtur stofnuðu Engilberts hönnun árið 2015 og nú eftir tveggja ára pásu hafa þau hannað glænýjar vörur og opnað glæsilega netverslun engilberts-honnun.is/netverslun þar sem gafavörurnar eru nú fáanlegar. Einnig eiga þau upplag af grafíkverkum eftir Jón Engilberts og verða verkin seld í gegnum netverslunina. Vörurnar frá Engilberts hönnun eru fullkomnar í jólapakkann enda ákaflega fallegar, menningarlegar og skemmtilega öðruvísi.

Guðdómlega falleg kerti og servíettur.

Nýjar vörur á markaði netverslana

Engilberts hönnun var með bás á Pop-up markaði netverslana í Víkingsheimilinu síðusti helgi, 9.–10. nóvember. „Næstu verðum við með bás á markaði í Laugardalshöll fyrstu helgina í desember. Þeir sem eru spenntir að fylgjast með er bent á Facebook-síðuna okkar, Engilberts-hönnun ehf. Þar má fylgjast með því sem er í gangi hverju sinni hjá Engilberts hönnun.“

Fíberklútur fyrir gleraugu og símaskjá.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum