fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Eyjan

Katrín útilokar ekki að setja lagningu sæstrengs í þjóðaratkvæðagreiðslu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 21. júlí 2019 12:36

Katrín Jakobsdóttir Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég útiloka ekki að þetta geti verið góð leið,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í útvarpsþættinum Sprengisandur er hún var spurð um möguleikann á því að setja ákvörðun um lagningu sæstrengs í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hugmyndir eru uppi um slíkt á meðal sumra þingmanna Sjálfstæðisflokksins og tengist umræðan ágreiningi í flokknum um samþykkt þriðja orkupakkans.

„Ég hef talað fyrir því að við séum með skýran ramma um þjóðaratkvæðagreiðslur og ég er ekki með oftrú á þjóðaratkvæðagreiðslum sem tækinu sem leysir allt þegar við viljum efla lýðræði í landinu, þá er ég ekki endilega þeirrar skoðunar að þjóðaratkvæðagreiðslur séu alltaf rétta leiðin. Ég vil miklu frekar horfa til aðferða sem snúast um að almenningur geti haft áhrif á ákvarðanir á fyrri stigum.“

Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur varpað þeirri hugmynd fram opinberlega að lagning sæstrengs fari í þjóðaratkvæði. Þess má geta að samþykkt Orkupakka 3 felur ekki sjálfkrafa í sér skyldu til að leggja sæstreng heldur er slík ákvörðun í höndum Alþingis.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás
Eyjan
Fyrir 1 viku

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“