fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Eyjan

Starfsmenn Reykjavíkurborgar fá 105 þúsund króna eingreiðslu

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 19. júlí 2019 10:38

Ráðhús Reykjavíkur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg greiðir starfsfólki með lausa kjarasamninga eingreiðslu þann 1. ágúst næstkomandi, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.  Er hún tilkomin vegna tafa á viðræðum um nýja kjarasamninga. Borgarráð hefur samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna eingreiðslu til starfsfólks borgarinnar sem verið hefur með lausa kjarasamninga síðan í vor.

Greiðslan er samkvæmt samkomulagi um endurskoðaða viðræðuáætlun sem aðilar komu sér saman um í lok júní um að innágreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019.  Jafnframt gerir endurskoðuð viðræðuáætlun ráð fyrir að samningar liggi fyrir í lok september.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Ekki tilviljun að Norðurlöndin eru fremst – þjóðkirkjan er í lykilhlutverki

Séra Örn Bárður Jónsson: Ekki tilviljun að Norðurlöndin eru fremst – þjóðkirkjan er í lykilhlutverki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar