fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
433Sport

Landsliðsmaðurinn Kári Árnason skrifaði undir í Víkinni

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 21. júní 2019 15:18

Mynd: Eyþór Árnason Kári Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason hefur skrifað undir hjá uppeldisfélagi sínu, Víkingi Reykjavík. Fréttir þess efnis voru staðfestar á fréttamannafundi í dag. Samningurinn er út tímabilið 2020.

Kári æfði með Víkingi í gær og hefur náð samkomulagi við félagið um kaup og kjör. Kári yfirgaf Víking árið 2004, hann hefur síðan þá leikið í atvinnumennsku.

Síðasta árið lék Kári með Genclerbirligi í Tyrklandi en fyrir ári síðan ætlaði hann að ganga í raðir Víkings. Góð frammistaða á HM, varð hins vegar til þess að Kári lék áfram erlendis.

Kári verður 37 ára gamall, síðar á þessu ári. Heimkoma hans er hvalreki fyrir Víking og Pepsi Max-deildina.

Kári hefur átt farsælan feril í atvinnumennsku en hann lék í Skotlandi, Englands, Svíþjóð, Kýpur og nú Tyrklandi.

Kári hefur einnig verið einn besti leikmaður íslenska landsliðsins síðustu ár en hann á að baki 77 A-landsleiki. Hann var frábær í sigrum liðsins á Albaníu og Tyrklandi, fyrr í þessum mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tottenham í sárum en skoðar þessa kosti – Eze í læknisskoðun hjá Arsenal á morgun

Tottenham í sárum en skoðar þessa kosti – Eze í læknisskoðun hjá Arsenal á morgun
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Blikar geta komist nær hundruðum milljóna í kvöld

Blikar geta komist nær hundruðum milljóna í kvöld
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gefast upp á Hojlund sem var ekki sannfærður um tilboðið

Gefast upp á Hojlund sem var ekki sannfærður um tilboðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Krakkarnir kölluðu hann rottu þegar hann mætti til vinnu í gær

Krakkarnir kölluðu hann rottu þegar hann mætti til vinnu í gær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vonar að Cunha læri mannasiði á Old Trafford – Telur að skapið geti komið honum í vandræði

Vonar að Cunha læri mannasiði á Old Trafford – Telur að skapið geti komið honum í vandræði
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Dóttirin skipaði honum að raka sig – „Sagði að þetta væri hræðilegt“

Dóttirin skipaði honum að raka sig – „Sagði að þetta væri hræðilegt“