Við móttökuathöfn í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum fyrr í dag var nýr Herjólfur formlega afhentur Vestmanneyingum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, nefndi þar formlega nýjan Herjólf og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu– og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp. Í ávarpi hans kom fram að með nýjum Herjólfi væri vonað að samgöngur milli Vestmannaeyja og meginlandsins yrðu betri. Þar benti hann jafnframt á að aldrei hefði annað komið til greina en að Herjólfur gengi fyrir umhverfisvænni orku þar sem orkuskipti eru ein af megináhersluatriðum ríkisstjórnarinnar.
Einnig fluttu ávörp, forstjóri Vegagerðarinnar, formaður bæjarráðs og fulltrúi Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Prestur Landakirkju blessaði svo skipið.
Afhendingu ferjunnar hefur verið beðið með óþreyju eftir að skipasmíðastöðin Christ S.A ákvað að krefjast hærra gjalds en samið hafði verið um. Afhendingu ferjunnar var því frestað á meðan reynt var að ganga frá samkomulagi.
En allt gekk upp að lokum og DV óskar Eyjamönnum til hamingju með nýjan Herjólf.