„Ef ég geng með hjólbörurnar eins og ég sé að hella úr þeim, þá fæ ég ekki verki í axlirnar,“ segir Hugi Garðarsson, 21 árs, sem ætlar að ganga hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélaginu í sumar.
Í tilkynningu sem Krabbameinsfélagið sendi frá sér kemur fram að Hugi geri ráð fyrir að vera um 100 daga á leiðinni, heimsækja 70 sveitarfélög og ganga 3.000-3.500 kílómetra. Hann gengur með allt sitt dót í hjólbörum sem hann hefur búið hliðarspeglum og þverstöng til að auðvelda gönguna á þjóðvegum landsins.
Í tilkynningunni segir að Hugi hafi áður starfað um tveggja ára skeið sem landvörður á Þingvöllum og síðustu þrjá mánuði í Skaftafelli. Hann hefur áður gengið hringinn í kringum landið, en fjárfesti í hjólbörum á Akureyri og gekk með þær til Reykjavíkur.
„Það er miklu auðveldara að labba með hjólbörur ef maður lyftir þeim upp og allur þunginn hvílir á dekkinu. Með hjólbörum næ ég léttilega að ganga allt að 35 kílómetra á dag, en án þeirra eru það aðeins 20-25 kílómetrar.“
Hjólbörur geta augljóslega verið til margra hluta nytsamlegar en í tilfelli Huga geymir hann þar allt sem hann þarf til ferðalagsins; tjald, svefnoka, matarbirgðir, bækur og gítar sem hann spilar á daglega.
Hugi segist oft vekja athygli með hjólbörurnar og alltaf sé einhver sem hægi á sér til að taka mynd, þótt hann hvetji fólk ekki til að hægja mikið á sér og skapa þannig hættu í umferðinni á þjóðvegum landsins.
Hugi gengur af stað frá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð í dag klukkan 14 til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini árið 2014: „Lát hennar var okkur fjölskyldunni afar þungbært, sérstaklega afa mínum. Ég ætla að fara hringinn réttsælis, heimsækja um 70 bæjarfélög og hlakka til að kynnast landinu á göngunni um leið og ég legg góðum málstað lið,“ segir Hugi að lokum og hvetur alla til að hringja í söfnunarsímann því flestir þekki einhvern sem hefur kljást við krabbamein.
Söfnunarsími 908-1001 fyrir 1.000 kr.
Hugi verður einn á ferð og hægt er að fylgjast með ferðum hans á facebook síðu göngunnar.