fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Neytendur

Verð innfluttrar matvöru lækkar en innlend framleiðsla hækkar í verði

Krónan styrkist og launahækkunum velt út í verðlag – Ofurvextir refsa íslenskum neytendum og framleiðendum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. mars 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrking krónunnar undanfarið virðist hafa skilað sér í lægra vöruverði á innfluttum matvælum í verslunum. Á móti kemur að verð á íslenskum matvælum, sumum hverjum, hefur hækkað verulega á sama tíma, í mörgum tilfella langt umfram verðlag. Launahækkunum á vinnumarkaði hefur verið velt út í verðlagið og íslenskir neytendur súpa seyðið af því. Formaður Neytendasamtakanna segir mikla verðhækkun innlendrar matvöru að verulegu leyti í boði ofurvaxtastefnu Seðlabankans. Staðan í dag sé óásættanleg frá sjónarhorni neytenda og innlendra framleiðenda, sem líði fyrir.

Erlent niður, innlent upp

DV ákvað að skoða hvernig og hvort styrking krónunnar hefði í raun skilað sér í lægra verði á innfluttum matvælum í verslunum. Til þess var stuðst við verðkannanir ASÍ á tilteknu tímabili, annars vegar í febrúar 2014 og nú í febrúar 2017. Í ljós kom að innfluttar vörur höfðu lækkað verulega í verði en íslenska framleiðslan hækkað.

Ákveðið var að miða við verð Hagkaupa í könnunum ASÍ þar sem vöruverð þar fetar ákveðinn meðalveg, er að jafnaði hvorki lægst né hæst.

Þar sem ekki eru alltaf sömu vörur milli kannana hjá verðlagseftirliti ASÍ voru sömu vörur milli verðkannana bornar saman. Þar sem verð á vöru fyrir árið 2017 vantaði voru þær fundnar í vefverslun Hagkaupa í einstaka tilfellum. Aðeins er um dæmi að ræða og listinn hvergi nærri tæmandi. Hins vegar sýna dæmin mjög greinilega tilhneigingu.
Eins og sjá má í meðfylgjandi töflum er eina innlenda varan í úttekt DV á verðkönnunum ASÍ sælgætið Völu froskabitar. Mesta verðhækkunin á innlendri vöru er á samlokubrauði frá Myllunni, 26% hækkun milli kannana, og rjómaosti frá MS, 24,5%.

Af innfluttu vörunum sem teknar voru út lækkar Merrild-kaffi mest, um 30%, Sun lolly frostpinnar og Kornax hveiti, báðar um og yfir 22%.

Til samanburðar ber að geta að frá febrúar 2014 til febrúar 2017 hækkaði vísitala neysluverðs um 5%, og hækkanirnar því umfram verðlag. En hvað skýrir þessar hækkanir þá? DV leitaði svara.

Forstjóri MS.
Ari Edwald Forstjóri MS.

Hækkun kemur ekki á óvart

Vörur frá MS eru áberandi í verðkönnunum ASÍ og fjórar mjólkurvörur að finna í úttekt DV. Þær hafa allar hækkað í verði á tímabilinu, umfram verðlag, en mismikið þó. Rjómaostur hefur þannig hækkað um 24,5% sem fyrr segir en hálfur lítri af Skyr.is með bláberjum aðeins um 6,2%.

Ari Edwald, forstjóri MS, bendir á að opinber nefnd, Verðlagsnefnd búvöru, ákveði heildsöluverð á flestum mikilvægari söluvörum MS og að aðrar verðbreytingar frá MS hafi verið nálægt þeim. Smásöluverð og smásöluálagning á þessum vörum er síðan frjáls svo verðmyndun þegar heildsöluverði sleppir byggi á ákvörðun hverrar verslunar fyrir sig.

„Það kemur mér ekki á óvart að innlend framleiðsla sé að hækka umfram verðlag. Launahækkanir hafa t.d. verið miklar en gengi krónunnar styrkst mikið.“

Skaðleg ofurvaxtastefna

Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, skellir skuldinni á vaxtastefnu Seðlabanka Íslands, sem bæði íslenskir neytendur og innlendir framleiðendur líði fyrir. Samanburður DV nú staðfesti það sem samtökin hafi bent á.

„Að helstu áhrif ofurvaxta Seðlabanka Íslands til varnar verðbólgu hér á landi koma fram í því að gengi krónunnar hækkar, sem leiðir til verðlækkunar á innfluttum vörum. Talsverð undirliggjandi verðbólga er hins vegar þegar innlend framleiðsla er skoðuð. Ofurvextir Seðlabankans eru raunar kostnaðarauki fyrir innlenda framleiðendur og ýta undir verðhækkanir og þar með verðbólgu. Við þetta má bæta að ofurvextir Seðlabankans gera ekkert til að slá á verðhækkanir á fasteignamarkaði því enginn liður í vísitölu neysluverðs hefur hækkað meira en einmitt húsnæðisliðurinn. Án húsnæðisliðarins hefði vísitala neysluverðs farið lækkandi allt frá árinu 2015.“

Formaður Neytendasamtakanna.
Ólafur Arnarson Formaður Neytendasamtakanna.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ólafur segir að svo virðist sem ofurvaxtastefna Seðlabankans hafi lítil áhrif á verðlag á Íslandi, önnur en þau að koma í veg fyrir lækkun vísitölu neysluverðs og standa þannig í vegi fyrir því að höfuðstóll húsnæðislána heimilanna og verðtryggðra lána fyrirtækjanna lækki.

En nokkrar augljósar skýringar eru á ólíkri verðþróun íslenskrar framleiðslu og innfluttra vara.
„Ofris krónunnar vegna of hárra vaxta Seðlabankans veldur lækkun á innkaupsverði innfluttra vara í krónum. Sömu áhrif hefur niðurfelling tolla og vörugjalda, sem nokkuð hefur verið um. Raunar ættu innflutt matvæli að hafa lækkað enn frekar en raun ber vitni ef einungis er horft til áhrifa af gengisþróun.“

Launaþróun innanlands hafi síðan haft áhrif til hækkunar á framleiðslukostnaði innlendra matvæla. Ofurvextir Seðlabankans valdi því svo að öll fjármögnun innlendra framleiðenda og fjárfesting sé mun dýrari en hjá erlendum framleiðendum sem búi við vaxtakostnað sem nemi einungis broti af þeim kostnaði sem innlendir framleiðendur og íslenskir neytendur búi við.

„Þá hefur húsnæðiskostnaður bæði íslenskra neytenda og fyrirtækja hækkað mjög ört undanfarin ár vegna skorts á húsnæði og títtnefndra ofurvaxta Seðlabankans, sem hækka mjög kostnað á byggingarstigi fasteigna. Þessi kostnaðarauki fer inn í verðlag.“

Í boði ofurvaxta Seðlabankans

Ólafur segir Neytendasamtökin ítrekað hafa ályktað gegn verðtryggingu neytendalána og ofurvaxtastefnu Seðlabankans og telja ábyrgð Seðlabankans á þeirri verðlagsþróun innlendrar framleiðslu mjög mikla.

„Þá er það einnig að háir vextir Seðlabankans auka mjög kostnað neytenda til að koma sér þaki yfir höfuðið og eru þannig ein rót þess að launþegar þessa lands hafa séð sig knúna til að sækja kauphækkanir umfram það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Því má segja að hin mikla verðhækkun innlendrar matvöru sé að verulegu leyti í boði ofurvaxtastefnu Seðlabankans. Sú verðlækkun innfluttra matvæla, sem fæst með gengishækkun krónunnar, sem stafar að verulegu leyti af þessum sömu ofurvöxtum, er síðan ekki sjálfbær þar sem vaxtamunurinn við útlönd laðar hingað spákaupmenn, sem fyrr eða síðar forða sér og þá hrynur krónan.“

Óásættanlegt

Ólafur segir aðspurður að þessi þróun sé óásættanleg út frá sjónarmiði neytenda. „Ástandinu í dag má líkja við alvarleg sjúkdómseinkenni í íslensku hagkerfi. Reynslan hefur sýnt okkur að svona ástand leiðir að lokum óhjákvæmilega til kollsteypu í hagkerfinu með tilheyrandi verðbólguholskeflu sem mun reynast neytendum þungbær í verðtryggingarumhverfi þar sem öll áhætta af efnahagsóstöðugleika er flutt af fjármálafyrirtækjum yfir á neytendur og atvinnufyrirtækin í landinu.“


Íslensk framleiðsla

Vara Verð 2014 kr. Verð 2017 kr. +Hækkun/-lækkun
Myllan samlokubrauð 770 g. 385 485 +26%
MS rjómaostur til matargerðar 400 g. 477 594 +24,5%
Kaffitár Morgundögg 400 g. (1) 799 979 +22,5%
MS AB mjólk 1 l. 267 319 +19,4%
SS hamborgarhryggur í sneiðum kílóverð 3.900 4.390 +12,5%
Royal karamellubúðingur 90 g. 215 239 +11%
MS Skyr.is bláberja 500 g. 369 392 +6,2%
MS ostur Ljótur 200 g. 659 699 +6%
Stjörnupopp osta 100 g. 184 189 +2,7%
Völu froskabitar 150 g. 388 339 -12,6%

(1) Morgundögg frá Kaffitári var í 500 g. pakkningum árið 2014 en 400 g. pakkningum árið 2017. Verðið frá 2014 hefur því verið umreiknað miðað við verð á grammi yfir í 400 g. pakkningu til að bera saman sama magn.


Innfluttar vörur

Vara Verð 2014 kr. Verð 2017 kr. +Hækkun/-lækkun
Merrild kaffi mellemristet 103 (500 g.) 849 689 -30%
Sun lolly appelsínubragð 10 stk. 339 439 -22,7%
Kornax hveiti 2 kg. rauður pk. 319 249 -22%
Melroses te, 25 stk. rauður pk. 329 229 -18,8%
Burger spelt hrökkbrauð 195 169 -13%
Bertolli viðbit 250 g. 249 219 -12%

Miðað við verð í verslunum Hagkaupa í verðlagskönnunum ASÍ í febrúarbyrjun 2017 og marsbyrjun 2014 þar sem sömu vörur voru milli kannana. Þar sem verð á vörum fyrir árið 2017 vantaði voru þær fundnar í vefverslun Hagkaupa. (7. mars 2017)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“