

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hætti við fund með leikmönnum sem átti að fara fram í dag.
Solskjær tilkynnti leikmönnum það í gær eftir tap gegn Cardiff, erfiðir tveir mánuðir á enda.
Solskjær hafði ætlað að funda með leikmönnum eftir tímabilið, gera það upp, áður en menn færu í sumarfrí.
Jafntefli gegn Huddersfield og tap gegn Cardiff, lið sem bæði voru fallin úr deildinni, urðu til þess að hann hætti við.
Solskjær sagði leikmönnum að hypja sig strax í frí, tapið gegn Cardiff hafi verið niðurlægjandi.
Þessi ákvörðun Solskjær er sögð hafa farið misvel í leikmenn, enda höfðu þeir planað sumarfrí sitt. Þeir hefðu annars byrjað að fara í gær en ekki eftir þennan fund.