fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Aron kvaddi með hjartnæmri færslu: Verður sárt saknað

433
Sunnudaginn 12. maí 2019 17:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta leik fyrir lið Cardiff City í dag en hann er á leið til Katar.

Aron hefur skrifað undir samning við Al Arabi í Katar og mun þar vinna með Heimi Hallgrímssyni.

Cardiff vann frábæran 2-0 sigur á Old Trafford í lokaleik Arons en Manchester United var andstæðingurinn.

Aron gekk í raðir Cardiff árið 2011 og hefur síðan þá nánast alltaf verið fastamaður á miðjunni.

Okkar maður er elskaður af stuðningsmönnum Cardiff og kvaddi þá á Instagram síðu sinni í kvöld.

Cardiff er fallið úr efstu deild en þetta er í annað sinn sem Aron fellur með liðinu á ferlinum.

,,Það hefur fylgt því ótrúleg ánægja að vera hluti af knattspyrnuliði Cardiff síðustu átta ár þar sem ég hef upplifað bæði góða og slæma tíma,“ sagði Aron.

,,Ég fékk þau forréttindi að spila með frábærum leikmönnum, stórum karakterum og fyrir framan þessa ástríðufullu stuðningsmenn í svo langan tíma.“

,,Ég vil þakka stuðningsmönnunum fyrir að bjóða mig og mína fjölskyldu velkomna til félagsins og vona að þið sýnið þessum magnaða leikmannahóp áframhaldandi stuðning næstu ár.“

,,Þvílík leið til að klára tímabilið með 2-0 sigri á Manchester United á Old Trafford en það er svekkjandi að við gerðum ekki nóg til að halda okkur uppi. Ég er viss um að við mætum aftur bráðlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi