

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Tom Stranger munu ekki flytja fyrirlestur á ráðstefnunni WOW – Women of the World sem fram fer í Lundúnum um helgina. Þetta er ákvörðun forsvarsmanna ráðstefnunnar til að bregðast við undirskriftasöfnun en 2.300 manns mótmæltu því að fyrirlesturinn yrði haldinn.
Gagnrýnin sneri að því að nærvera Stranger myndi vekja upp vondar minningar hjá þolendum kynferðisofbeldis. „Við töldum að ráðstefnan væri ekki réttur vettvangur fyrir Stranger. Konur þyrftu ekki að heyra um nauðgun frá nauðgara.“ Þetta kemur fram á vefsíðu ráðstefnunnar. Þess í stað verður fyrirlesturinn haldinn eftir helgina, þann 14. mars, utan formlegrar dagskrár ráðstefnunnar.
Þórdís Elva og Tom hafa vakið mikla athygli í kjölfar bókar og fyrirlestra sem þau hafa skrifað og flutt saman og fjallar um reynslu þeirra af sáttar- og ábyrgðarferli. Þórdís Elva hafði samband við Tom mörgum árum eftir að hann nauðgaði henni en þá var hún 16 ára og hann 18.