

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan 13.05 á fimmtudag neyðarkall frá báti með einum manni um borð. Báturinn var staddur tvær sjómílur norðvestur af Rifi þegar leki kom að honum.
Í tilkynningu sem Landhelgisgæslan sendi frá sér kemur fram að bátur sem var í grenndinni hafi fljótlega komið á vettvang. Þá hafi björgunarskipið Björg á Rifi verið kallað til, svo og þyrla Landhelgisgæslunnar.
Skipverjinn komst um borð í fyrrnefndan bát svo þyrlunni var snúið við.