fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Gróft framhjáhald David Beckham: ,,Ég veit að við ættum ekki að gera þetta en ég get ekki að því gert“

433
Laugardaginn 11. apríl 2020 18:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímavél:

David Beckham, einn frægasti knattspyrnumaður allra tíma var árið 2004 sakaður um gróft framhjáhald, hann var þá og er í dag giftur Victoria Beckham.

Aðdáendur Beckham-hjónanna um allan heim urðu fyrir áfalli þegar sögur um að David hafi haldið framhjá sinni heittelskuðu. „Þetta kemur engum á óvart sem þekkir hann,“ sagði náinn vinur fjölskyldunnar .„Hann hefur verið kynlífslaus í margar vikur og hefur reynt að vera trúr eiginkonu sinni en eitthvað hlaut að gefa sig.“ David bjó sem kunnugt er í Madrid og spilaði með Real Madrid, spúsa hans hafði dvalið í London og hugað að tónlistarferli sínum.

Ástkona hans var hin 26 ára gamla Rebecca Loos, sem er dóttir diplómata. Beckham réði hana sem aðstoðarkonu en hún var látinn fara eftir að myndir birtust af þeim saman í september á síðasta ári sem vakti gremju Victoríu. Beckham hafði sent Rebeccu SMS-skilaboð, þar sem hann útlistaði í smáatriðum hvað hann vildi gera við hana í rúminu. Svo fór að hann fékk ósk sína uppfyllta.

Með klósettpappír hangandi upp úr buxunum
David og Rebecca fóru ásamt vinum sínum á veitingastað og fóru þar í sannleikann eða kontór, þar sem David fékk Rebeccu til að ganga í gegnum veitingastaðinn með klósettpappír hangandi upp úr buxunum. Þar eftir fóru þau á Ananda, einn vinsælasta klúbb borgarinnar. Eitt leiddi af öðru og enduðu þau saman í rúminu.

Önnur kona steig fram:
Önnur kona steig fram sem og sagðist hafa átt í ástarsambandi við David Beckham. Sú heitir Sarah Marbeck og var 29 ára fyrirsæta. Samkvæmt henni hittust þau Beckham fyrst árið 2001 í gleðskap og enduðu saman í rúminu eftir aðeins fjögurra klukkustunda kynni. Hún ætlar að birta alla söguna í næsta hefti News Of The World. Þá hafa fleiri meintar hjásvæfur Davids Beckham gefið sig fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United