fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Mikil streita á Hatara-mönnum: „Ekki auðvelt að binda enda á kapítalisma“

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 7. apríl 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er búin að vera mikil streita á okkur í dag. Það er ekki auðvelt að vinna sig að því að binda enda á kapítalisma. Þess vegna er Matthías búinn að einbeita sér að því að nudda axlirnar mínar á hverjum degi, í fimm til tíu mínútur á tveggja klukkustunda fresti.“

Svo mælir Klemens Nikulás Hannigan en strákarnir í Hatara vinna um þessar mundir hörðum höndum að koma sér í gír fyrir Söngvakeppni Eurovision í Ísrael. Lag þeirra, Hatrið mun sigra, hefur sópað til sín gríðarlegum vinsældum á Íslandi og erlendis og eru ýmsir sérfræðingar farnir að spá Hatara afar góðu gengi í lokakeppninni.

Þeir Klemens og Matthías Tryggvi Haraldsson voru í viðtali vegna kynningarviðburðarins Eurovision in Concert í Amsterdam, en þar var hljómsveitin kynnt til sviðs með hinum skemmtilegu orðum: „Nú er komið að umdeildasta atriði ársins…“

Í ljósi streitunnar sem hefur nýverið hellst yfir drengina hefur Matthías ákveðið að skilgreina sig sem bæði söngvara og nuddara hljómsveitarinnar. Klemens segir að kollegi sinn sé með þétt grip og því er Matthías ekki ósammála. „Ég er afar með þétt grip á öllum hlutum“, bætir hann við með alvarlegan svip.

Næstum því eins og ABBA

Þegar drengirnir eru beðnir um að lýsa stílnum sínum á framlagi sínu er ljóst að innblásturinn hafi verið fengið víða.„Við sjáum þetta lag um dystópíu, sem endurspeglar völd og valdaleysi. Þetta er myrk sýn á því sem við teljum að gæti orðið.“

Þeir segja stíl sinn jafnframt vera hámenntaðan og andkapítalískan, einnig að ópera sé mikill áhrifavaldur ásamt Cabaret, poppi og gjörningi ekki síður. „Ef ABBA væri meira marxískt,” skýtur Klemens inn. „Eða jafnvel póstmarxískt,” segir þá Matthías og bætir skjótt við: „Við viljum þakka styrktaraðilum okkar kærlega fyrir hvert einasta augnablik, bæði fyrir launuð viðtöl og viðtöl sem við veitum í okkar frítímum.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Í gær

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi