Manchester United er komið áfram í Meistaradeild Evrópu eftir leik við frönsku meistarana Paris Saint-Germain í gær.
Um var að ræða seinni leik liðanna en United tapaði fyrri leiknum 2-0 á sínum heimavelli, Old Trafford. Það var boðið upp á skemmtilegan leik í Frakklandi þar sem United hafði betur með þremur mörkum gegn einu.
Romelu Lukaku var heitur í gær og skoraði tvö mörk fyrir gestina í fyrri hálfleik. Juan Bernat skoraði þó einnig fyrir PSG en staðan var 2-1 eftir fyrstu 45.
Á 90. mínútu leiksins þá fékk United svo vítaspyrnu en Presnel Kimbempe fékk þá knöttinn í höndina innan teigs og steig Marcus Rashford á punktinn. Rashford skoraði af miklu öryggi framhjá Gianluigi Buffon í markinu og tryggði United 3-1 sigur og fer liðið því áfram á mörgkum skoruðum á útivelli.
Það vakti athygli í gær þegar Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United þurfti að fara í vesti yfir fötin sín. Ástæðan var sú að Solskjær var dökkklæddur líkt og leikmenn PSG, það ruglaði aðstoðardómarann sem var að fylgjast með línunni.
Það varð til þess að Solskjær fór í vestið, Tómas Þór Þórðarson, fréttamaður hjá Sýn bendir á að þarna sé Solskjær að feta í fótspor Willums Þórs Þórssonar, þingsmanns Framsóknarflokksins.
Willum fór eitt sinn í vesti á bekknum sem þjálfari og birti Tómas mynd af því sem sjá má hér að neðan.
Sá síðasti til að gera þetta í vesti. pic.twitter.com/6lS6xosbkK
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) March 7, 2019