fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Hörmulegar aðstæður aldraðra – Vannærðir, einmana, daprir og lágar tekjur

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 3. janúar 2019 08:02

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það einkennir þá sjúklinga sem útskrifast af öldrunardeild Landspítalans og búa heima að þeir glíma við vannæringu, einmanaleika, depurð og lágar tekjur. „Þetta er alveg svakalegt. Það var um það bil kíló á viku sem fólk var að missa að meðaltali hjá þessum hóp sem ég skoðaði, sumir aðeins minna og sumir aðeins meira.“ Segir Berglind Soffía Blöndal, doktorsnemi í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, um næringarástand aldraðra eftir útskrift af öldrunardeild en hún rannsakaði aðstæður þessa hóps aldraðra.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að Berglind hafi fylgt 13 manns í nokkrar vikur eftir að þeir útskrifuðust af öldrunardeild.

„Við sjáum þetta líka í öllum rannsóknum erlendis, fólk kemur kannski vannært inn á spítalann en dvölin þar er svo stutt að það gefst ekki tími til næra það almennilega upp og svo fer fólkið heim og heldur áfram að versna.“

Er haft eftir Berglindi í Fréttablaðinu. Hún segir vandann vera fjölþættan en skortur á hjúkrunarrýmum og þrýstingur úr öllum áttum á Landspítalann að útskrifa fólk eins fljótt og hægt er valdi því að ekki sé hægt að leysa þennan vanda. Hún segir að fólkið fái nóg að borða á meðan það dvelur á spítalanum og vel sé hugsað um næringu fólks en spítaladvölin sé svo stutt að hún dugi ekki til að vinna upp vannæringu.

Kynslóðin sem kvartar ekki

Hún mun kynna niðurstöður rannsóknarinnar á Líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnunni sem fer fram í Háskóla Íslands í dag og á morgun. Niðurstöðurnar sýna ekki aðeins að þátttakendurnir í rannsókninni glíma við ótryggt fæðuöryggi og slæmt næringarástand því þeir glíma einnig við þunglynid, depurð og einmanaleika. Allir þátttakendurnir voru með minna en 200.000 krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Þeir voru á aldrinum 77 til 93 ára og voru mældir við útskrift af öldrunardeild og síðan heimsóttir tvisvar eftir útskrift með viku millibili.

Berglind segir þátttakendurna almennt hafa borið sig vel og sagst hafa nóg að gera en annað hafi komið í ljós þegar þeir svöruðu spurningalista um þunglyndi og einmanaleika.

„Það er líka algengt að þau eigi engan að sem þau geta treyst fyrir öllu, svona trúnaðarvin sem er eflaust líka mjög erfitt og gerir mann einmana, ef maður er að bera hluti einn sem maður hefur engan til að ræða um við.“

Segir Berglind en leggur áherslu á að flestir þátttakendanna hafi átt ágætt bakland og aðstandendur þeirra séu yfirleitt allir af vilja gerðir til að hjálpa en samfélagslegar breytingar valdi þessari einangrun gamla fólksins og það vilji ekki láta hafa fyrir sér.

„Mín upplifun er sú að aðstandendur séu mjög viljugir en fólkið sjálft segir bara: Nei, nei, það er allt í góðu hjá mér, ég á nóg til, engar áhyggjur.“

Er haft eftir Berglindi í Fréttablaðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum