Mörg fyrirtæki og stofnanir hér á landi hafa gefið starfsmönnum sínum jólagjafir, nú þegar aðeins nokkrir dagar eru til jóla. DV upplýsti í gær hvað nokkur fyrirtæki gæfu sínu starfsfólki og hefur síðan fengið fjölda ábendinga um hvað fólk fengi frá sínum vinnuveitanda. Að gefnu tilefni vill DV minna lesendur á að lesa þetta ekki ef viðkomandi ætlar að opna sinn pakka á aðfangadag.
Starfsmenn Samkaupa fengu mis veglega gjöf eftir starfsaldri og starfshlutfalli, gjafakort í Samkaupum að verðgildi 10 til 30 þúsund krónum. Isavia gaf sínum starfsmönnum óróa frá Líf og list að andvirði um fjögur þúsund krónur auk 15 þúsund króna inneignar hjá Íslandsbanka.
Ekki verður lagt mat á það hér hver versta jólagjöfin var þó þær séu vissulega misveglegar. Starfsmenn á sambýli á vegum Garðabæjar hoppa væntanlega ekkert hæð sína af kæti, en þeir eru sagðir fá 2500 krónur upp í jólahlaðborðið, óháð starfshlutfalli. Svipað er uppi á teningnum hjá Costco en þar fá starfsmenn 3.500 króna inneign í búðinni. Skeljungur, sem sér um eldsneyti hjá Costco, gaf sínum starfsmönnum hins vegar 70 þúsund króna inneign hjá Heimkaup og kaffipakka. Það er því augljóslega mikill munur á gjöfum eftir vinnustöðum.
Alcoa Fjarðaál gaf, líkt og vanalega að sögn heimildarmanns, gjafakassa sem innihélt: hamborgarhrygg, hangikjöt, nokkra osta, kæfu, Nóa konfekt, lax, sultu og þvottpoka og bolla frá Sveinbjörgu. Starfsmenn Frjálsrar fjölmiðlunar, DV þar á meðal, fengu svipaðan kassa sem innihélt meðal annars lambalæri, súkkulaði, hráskinku og fleira góðgæti.
Starfsmenn Ölgerðarinnar fengu að sjálfsögðu Malt og Appelsín, Pepsi eða Pepsi Max, hamborgarhrygg, rauðvín og hvítvín, Quality Street, snyrtivörur, kerti, piparkökur og fleira góðgæti í gjafapoka. Styrktafélagið Ás gefur starfsfólki sínu leirkrús og kassa af After eight
Þeir sem vinna hjá Gæðastáli fengu fjölbreytta jólagjöf en þeir fengu: hamborgarhrygg, hangikjöt, andabringu, konfekt frá Nóa Síríus, osta, inneign í Smáralind að andvirði tíu þúsund króna og auka frídag.
Starfsmenn Domino’s fá að velja á milli Bluetooth heyrnatóla eða Bluetooth hátalara. Uppfært: Allir u.þ.b. 850 starfsmenn Domino´s fá sömu jólagjöfina frá fyrirtækinu. Hluti starfsfólks Domino´s fær hins vegar árangurstengdar bónusgreiðslur, sem eru ótengdar jólum. Ranghermt var að starfsfólk á skrifstofu fengi gjafabréf frá Arion banka
HB Grandi gaf 35 þúsund króna inneignarkort frá Íslandsbanka og Bose-hátalara. Starfsfólk Fjölnets fékk 50 þúsund króna gjafakort Arion banka og 3 daga launað frí.
Starfmenn Landsbankans fengu gjafabréf í Líf og List að andvirði 50 þúsund króna auk 10 þúsund króna gjafabréfs frá starfsmannafélaginu. Starfsmenn Lánasjóðs íslenskra námsmanna fengu heldur lakari gjöf en þeir fengu rauðvínsflösku og 15 þúsund króna gjafakort.
Gjafakort Landsbankans virðist nokkuð algeng gjöf en starfsmenn í fullu starfi hjá Bláa lóninu fengu 50 þúsund króna gjafakort frá bankanum. Hlutastarfsmenn fengu 25 þúsund króna gjafabréf. Þá fengu starfsmenn vörur merktar Bláa lóninu og konfekt. Starfsmenn Birgisson fengu sömuleiðis gjafakort frá Landsbankanum en hjá þeim var andvirði þess 40 þúsund krónur.
Starfsmenn Origo fengu nýja týpu af Bose hátölurum sem hægt var að skipta í inneign í Origo búðinni eða inneign hjá 66° norður. Hátalarinn sem um ræðir kostar 64.900 krónur á heimasíðu Origo. Þeir sem vinna hjá Árvakri, útgefanda Morgunblaðsins, fengu 30 þúsund króna gjafabréf hjá 66° norður. Starfsmenn á Hrafnistu fengu sömuleiðis gjafabréf í Kringluna og 66°norður, en upphæðin fór eftir vinnuhlutfalli. Starfsmenn Heimkaupa fengu 25 þúsund króna inneign hjá fyrirtækinu.
Starfsmenn Marels fengu 50 þúsund króna gjafakort í Kringlunni. Advania gaf starfsmönnum sínum skurðarbretti, svuntu og kokkahníf. Reykjavíkurborg gaf svo gjafabréf fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Samkvæmt heimildum gaf Landspítalinn8.500 króna inneign hjá Icewear. Starfsmenn Sagafilm fengu svo óefnislega eign, einn frídag.
Starfsmenn Háskóla Íslands gaf tvo frídaga og miða fyrir tvo í Þjóðleikhúsið. Húsasmiðjan gaf val um 12 þúsund króna gjafakort eða kjötpakka. Starfsmenn Póstsins fengu lambalæri, hamborgarhrygg, kindavöðva og konfekt.
Icelandair gaf svínahamborgarhrygg rúmlega 2 kg, 2 stykki andabringur, konfekt, Gouda ostinn „sterkur,“ Húskarla hangikjöt 2 bréf, Múmín bolla, servíettur og 6000 króna gjafakort sem hægt er að nota sem greiðslu upp í nótt á hótelum Icelandair eða í brunch á Vox.
Þessi upptalning er augljóslega ekki tæmandi og því hvetur DV lesendur til að senda okkur tölvupóst á frett@dv.is og láta okkur vita hvað vinnustaðurinn gaf í jólagjöf.