fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Ungur háskólanemi vann rúmar 40 milljónir um helgina: Nennti ekki að kíkja á miðann fyrr en á sunnudag

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. desember 2018 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var pollrólegur og mjög ánægður vinningshafi sem mætti til Getspár ásamt foreldrum sínum með vinningsmiðann frá síðasta laugardegi. Er hann með þeim yngri sem við höfum fengið í heimsókn til okkar en hann er aðeins rétt um tvítugt, háskólanemi sem býr í foreldrahúsum.“

Svona hljómar tilkynning frá Íslenskri getspá um nýjasta milljónamæring Íslands, ungan háskólanema sem vann 41,4 milljónir króna í lottóinu um helgina.

„Ungi háskólaneminn heyrði auglýsingu um stóran Lottópott síðasta laugardag og hugsaði þá með sér: „Best að kaupa miða”.  Og þar sem hann átti leið um Hafnarfjörð ákvað hann að koma við í Fjarðarkaupum og klára málið, með von um vinning.“

Á laugardagskvöldið, þegar ungi maðurinn var kominn í háttinn, mundi hann eftir lottóinu og fór hann inn á lotto.is þar sem hann skoðaði vinningstölurnar. Sá hann einhverjar kunnuglegar tölur.

„Miðinn var hins vegar úti í bíl og hann nennti alls ekki að klæða sig og sækja miðann, það gerði hann hins vegar um leið og hann vaknaði daginn eftir og grunurinn reyndist réttur, hann hélt á vinningsmiða sem á var vinningur upp á rúmlega 41,4 milljónir króna.“

Í tilkynningunni segir að maðurinn ætli að gefa sér góðan tíma til að ákveða næstu skref. Hann var þó harðákveðinn í að byrja á því að leyfa bílnum sínum að fara í gegnum alþrif, í tilefni jólanna.

„Starfsfólk Getspár óskar vinningshafanum innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning,“ segir að lokum í tilkynningunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía

Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía
Fréttir
Í gær

Opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis: „Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara“

Opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis: „Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara“
Fréttir
Í gær

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening
Fréttir
Í gær

Tekinn með bensínsprengju

Tekinn með bensínsprengju
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kallar eftir skýrari afstöðu stjórnvalda – „Sitji ekki hjá sofandi að feigðarósi og láti listafólk um þetta alltaf!“

Kallar eftir skýrari afstöðu stjórnvalda – „Sitji ekki hjá sofandi að feigðarósi og láti listafólk um þetta alltaf!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur til OK

Vilhjálmur til OK
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“