fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Eyjan

Bókafrumvarp samþykkt á Alþingi

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. desember 2018 18:15

Lilja Alfreðsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frumvarp um stuðning við útgáfu bóka á íslensku var samþykkt á Alþingi í dag. Með því verður komið á fót stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku.

„Það gleður mig mjög að samstaða var um þessa tímamótaaðgerð. Við viljum efla útgáfu á íslensku vegna menningarlegs mikilvægis bókaútgáfu fyrir þróun tungumálsins okkar og þetta skref er hið fyrsta í heildstæðum aðgerðum okkar til stuðnings íslenskunni. Ég telst þess fullviss að þessi aðgerð okkar muni marka þáttaskil fyrir íslenskar bækur og hafa jákvæða keðjuverkun í för með sér, til hagsbóta fyrir lesendur, rithöfunda og alla þá er koma að útgáfu hér á landi,“

sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Guðmundur Andri Thorsson, fyrsti varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar og þingmaður Samfylkingarinnar gat þess í sinni ræðu við aðra atkvæðagreiðslu frumvarpsins að stuðningur við bókmenntir væri vegna gildis þeirra í sjálfum sér: „Við styrkjum bókmenntir vegna þess að í þeim sjáum við okkur sjálf, við sjáum íslenskt mannlíf í allri sinni fjölbreytni … Við styrkjum bókmenntir vegna þess að af einni lítilli bók geturvaxið svo margt annað sem er gott og jákvætt.“

Samþykktar breytingartillögur allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarpið voru meðal annars þær að skýrara er kveðið á um að undir hugtakið „bók“ falli einnig hljóðupptökur á lestri slíkra verka og rafræn útgáfa, og að umsækjendum beri að leggja fram staðfestingu á greiðslum til höfunda eða rétthafa með umsóknum sínum. Einnig að í reglugerð með frumvarpinu verði mögulegt að ákveða lægri viðmiðunarfjárhæð endurgreiðsluhæfs kostnaðar fyrir bækur á stafrænum miðlum og tiltekna flokka bóka.

Lögin munu taka gildi frá og með 1. janúar nk. en skilyrði fyrir endurgreiðslu á hluta útgáfukostnaðar eru m.a. að útgefin bók sé á íslensku, umsækjandi sé ekki í vanskilum við opinbera aðila og færi sundurliðað bókhald yfir þann kostnað sem liggur til grundvallar beiðni um endurgreiðslu. Til endurgreiðsluhæfs kostnaðar telst m.a. beinn launakostnaður og verktakagreiðslur, þóknun til höfunda, prentkostnaður og prófarkalestur. Ráðgert er að framlag vegna endurgreiðslna muni nema um 400 milljónum kr. frá og með næsta ári.

Lögin munu koma til endurskoðunar fyrir 31. desember 2023 en ráðherra mun gera úttekt á árangri stuðnings við útgáfu bóka á íslensku fyrir lok árs 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás
Eyjan
Fyrir 1 viku

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“