Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk að sýna fyllstu aðgát og ganga frá lausum munum til að fyrirbyggja foktjón í dag. Einnig vill lögreglan beina þeim tilmælum til verktaka að ganga vel frá byggingasvæðum sem þeir bera ábyrgð á. Spáð er allt að 25 metrum á sekúndu á höfuðborgarsvæðinu í dag ásamt mikilli rigningu.