fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Fisherman: Ein besta fiskisjoppa úthverfanna

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 10. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tíunda sæti á Tripadvisor

Á Hagamel má finna eina bestu fiskisjoppu úthverfa Reykjavíkur og þó víða væri leitað! Fisherman á Hagamel er númer tíu á lista Tripadvisor yfir bestu veitingastaði í Reykjavík. „Við erum að auki annað tveggja fyrirtækja utan miðbæjarins með hæstu meðmælin á Tripadvisor. Við erum með gott hráefni og góða kokka svo útkoman er einfaldlega góð,“ segir Elías, eigandi Fisherman.

Einfaldur matseðill

Fisherman býður upp á einfalda en matmikla fiskrétti eldaða á staðnum sem hægt er að taka með sér í hádegismat á vinnustaðinn, heim í kvöldmat eða snæða tilbúna á staðnum.

Fisherman

Þá stendur til boða að setja saman eigin máltíð þar sem kaupandi velur fisk, meðlæti og svo sósu. „Starfsmaður getur hjálpað til við val á því hvað passar best saman hverju sinni,“ segir Elías. Með hverri máltíð fylgir salat og Kristall í 0,33l dós.

Fisherman

Einnig býður Fisherman upp á sérrétti eins og fisk og franskar, laxborgara, fiskisúpu og dásamlegt laxanja. „Það er eins og lasagna, nema með laxi. Þessi réttur er mjög vinsæll enda ljúffengur og hollur,“ segir Elías.

Fisherman

Fiskisjoppa og sælkeraverslun

Fisherman er ekki bara veitingastaður heldur líka sælkerasjoppa með vörur tengdar fiski. „Við seljum ferskan og góðan fisk beint úr sjónum! Einnig erum við með fyrsta flokks harðfisk að vestan, niðursoðna þorsk- og skötuselslifur sem frakkarnir segja hið mesta lostæti, sólþurrkuð söl og sjávarsalt. Þar að auki vorum við að bæta við úrvali af frystu sjávarfangi eins og fiskbitum, humari og gellum,“ segir Elías. Það er víst að það er af nógu að taka hjá Fisherman á Hagamel og um að gera að skella sér þangað til að smakka ljúffenga fiskrétti.

Heitir fiskréttir til fyrirtækja

Þess má einnig geta að hægt er að panta heita fiskrétti hjá Fisherman sem er heimsendur í hádeginu til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.

Fiskisjoppa Fisherman er staðsett að Hagamel 67, 107 Reykjavík.

Nánari upplýsingar á www.fisherman.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum