Mojfríður einkaspæjari: Marta Eiríksdóttir
Mojfríður stendur uppi ein eftir að foreldrar hennar deyja með voveiflegum hætti. Hún ákveður að láta þann draum sinn rætast að starfa sem einkaspæjari fyrir konur er gruna eiginmenn sína um framhjáhald og græsku. Á vegi hennar verða ýmsar hindranir sem hún þarf að sigrast á og þeirra á meðal er ástin. Mojfríður er engin venjuleg kona, hún er kynlegur kvistur sem lætur engan ósnortinn sem fær að kynnast henni.
Andstæður: Guðrún Sigríður Sæmundsen
Andstæður er spennandi og áhrifamikil samtímasaga byggð á raunverulegum heimildum og gefur sterka sýn inn í harðan heim vændis og fíkniefna.
Hófí er fædd: Monika Dagný Karlsdóttir
Hófí litla nýtur lífsins á bóndabænum. Hún vex og dafnar og kynnist heiminum í kringum sig. Fylgið henni í þessu ævintýri um fjölskyldu hennar, arfleifð og sögu Íslands.
Hófí eignast vini
Hófí eignast nýja vini á bóndabænum á meðan hún bíður eftir að fara heim til nýju fjölskyldunnar sinnar. Lífið er spennandi og skemmtilegt í sveitinni!
Ævintýrin um Hófí eru innblásin af íslenska fjárhundinum Hólmfríði frá Kolsholti (1988–2003)
Bækurnar eru fagurlega myndskreyttar af hollenska hönnuðinum og teiknaranum Martine Jaspers-Versluijs.
Ragnarök – Örlög goðanna
Nýtt einstakt spil um norræna goðafræði.
Stokkurinn inniheldur sextíu og fimm spil sem kynna til sögunnar verur og hugtök úr norrænni goðafræði. Upplýsingarnar á hverju spili eru fengnar úr frumheimildunum. Sex leikir eru mögulegir með stokknum og miðast þeir við þekkingu á fræðunum, allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, ungir sem aldnir, fróðir jafnt sem þeir sem eru að kynnast fræðunum.
Spilið er að koma út í fyrsta sinn í íslenskri útgáfu en enska útgáfu þess gáfum við út í fyrrahaust. Hefur það hlotið verðskuldaða athygli og er þegar selt til fleiri landa auk þess sem mikið er keypt af því af ferðamönnum hér. Í síðustu viku kom spilið út í danskri þýðingu í Danmörku og snemma á næsta ári kemur spilið út í Noregi og Þýskalandi. Því er ljóst að það er mikill áhugi fyrir því.