fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Matur

Sykurpúðar komu konu í ótrúlegt klandur

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 26. nóvember 2018 16:15

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dasha Fincher bjóst að líkindum ekki við því að poki, fullur af sykurpúðum, ætti eftir að koma henni á bak við lás og slá í nokkra mánuði.

Raunin varð engu að síður sú eftir að hún var stöðvuð af lögreglu á gamlárskvöld 2016 í Monroe-sýslu Georgíuríki í Bandaríkjunum.

Lögreglan stöðvaði hana þar sem hún taldi að filmur í rúðum bílsins voru of dökkar. Síðar kom í ljós að svo var ekki, en það er önnur saga.

Lögregluþjónar komu auga á fyrrnefndan poka í bílnum og spurðu um innihald hans. Dasha sagði sem var að í pokanum væru sykurpúðar. Lögregla ákvað samt að gera fíkniefnapróf á innihaldi pokans á staðnum og gaf prófið til kynna að metamfetamín væri í pokanum.

Þetta kom Dasha verulega á óvart, hún reyndi að malda í móinn en var færð í handjárn og flutt á lögreglustöð. Var hún í kjölfarið kærð fyrir að hafa verulegt magn fíkniefna undir höndum og send beint í fangelsi þar sem hún var í þrjá mánuði.

Í mars 2017 kom loks niðurstaða í málið og var hún á þá leið að pokinn hefði aðeins innihaldið sykurpúða. Fjórum vikum síðar var málið gegn henni fellt niður.

Eðli málsins samkvæmt hefur Dasha nú stefnt lögreglunni í Monroe-sýslu og fer hún fram á bætur fyrir fangelsisvistina. Hún stefnir einnig Sirchie Acquisitions, en það er fyrirtækið sem framleiðir fíkniefnaprófin sem lögreglan notast við. Ljóst er að eitthvað bogið var við þetta tiltekna próf sem tekið var á gamlárskvöld 2016.

Dasha segir að fangelsisdvöldin hafi haft mikil áhrif á líf hennar, en hún sat í steininum þegar tvö barnabörn hennar, tvíburar, komu í heiminn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.08.2025

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð

Svona velur maður fullkomið avókadó úti í búð
Matur
19.07.2025

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi
Matur
16.07.2025

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi

Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi
Matur
18.04.2025

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa

Bakaðu páskahreiður Láru og Ljónsa
Matur
17.04.2025

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum

Rjómaostakúla með pekan og trönuberjum
Matur
05.02.2025

„Það vantar meiri kærleik!“

„Það vantar meiri kærleik!“
Matur
23.01.2025

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn

Nýr bóndadagsís frá Skúbb í samstarfi við Helvítis Kokkinn