Ein skærasta tennisstjarna heims, Serena Williams, sem tapaði fyrir Naomi Osaka á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis sakaði dómarann um karlrembu. Sagði stórstjarnan að dómarinn væri þjófur sem hefði haft af henni stig. Var Williams sektuð og tapaði leiknum. Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu fjallar viðbrögð tennisstjörnurnar í leiðara í dag þar sem hún segir Williams snúa öllu á haus.
„Svo eru aðrar íþróttahetjur, dáðar um allan heim, sem kunna að lifa sómasamlega. Þær virðast hinar fullkomnu fyrirmyndir og ekkert sýnist geta steypt þeim af stallinum. Svo dag einn reynast þær versti óvinur sjálfs sín. Það henti Serenu Williams á dögunum í úrslitaleik bandaríska meistaramótsins í tennis. Hún braut tennisspaða sinn og hellti sér yfir dómarann með ópum og öskrum þegar henni varð ljóst að hún myndi ekki vinna, eins og hún virðist sjálf hafa talið fyrirfram öruggt.“
Williams sakaði dómarann um svindl og þá hefði húðlitur hennar einnig haft áhrif. Kolbrún segir:
„Karlveldið hefur gríðarlega margt á samviskunni og með réttu má kenna því um ýmislegt, en í þessu máli ber það ekki sök, eins og upptökur sanna,“ segir Kolbrún og bætir við: „Í nafni kvennasamstöðu og baráttu gegn karlveldinu hefur Serena Williams verið hyllt, þrátt fyrir að hafa ítrekað brotið reglur og orðið sér til háborinnar skammar á vellinum. Þetta kallast að snúa hlutunum rækilega á hvolf. Um leið skipta staðreyndir engu máli og réttmætar áminningar og refsistig karlkynsdómara eru einungis sögð til marks um illa meðferð á konum í íþróttaheiminum. Þvílík endemis þvæla!“