Bláskógaskokkið er áreiðanlega með elstu hlaupum landsins því það hefur verið haldið árlega allar götur frá árinu 1972. Á þeim tíma var skokk ekki sú almenningsiðja sem það er í dag en fyrsta Bláskógahlaupið vakti mikla athygli og tóku yfir 300 manns þátt í því.
Skipuleggjandi hlaupsins í dag, Ingvar Garðarsson, tók þátt í einu af fyrstu hlaupunum þá unglingur að aldri. Hann segir að í allra fyrsta hlaupinu hafi margir skokkað hægt eða gengið með.
Bláskógaskokkið fer að þessu sinni fram laugardaginn 23. júní og verður ræst kl. 11. Hlaupið hefst við Gjábakkaveg, sem er gamli þjóðvegurinn, austan Þingvallvatns. Hlaupið er eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns og komið í mark hjá heilsulindinni Fontana við Laugarvatn.
Keppendur þurfa að mæta við Fontana á Laugarvatni þar sem þeir geta skráð sig, staðfest forskráningu, sem er á hlaup.is og fengið afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00 á keppnisdag. Hlaupurum er síðan boðið í heilsulindina Fontana að hlaupi loknu. Sérstök athygli er vakin á því að Fontana ætlar að bjóða hlaupurum frítt inn að hlaupi loknu. Almennt gjald á mann í Fontana er 3.800 kr. Hlauparar eru því að fá talsvert fyrir 2.000 kr. þátttökugjald.
Vegalengdin er nákvæmlega 10 mílur eða 16,09 km. „Þetta er nokkuð hæðótt leið og er mestmegnis á möl. Mörgum þykir mikill kostur að það er engin bílaumferð eftir veginum,“ segir Ingvar sem þarf að eyða púðrinu í að skipuleggja hlaupið og getur ekki tekið þátt en hann hefur oft hlaupið þessa leið.
Hlaupaleiðin þykir skemmtileg og falleg enda um að ræða eitt af fallegri svæðum landsins. Að sögn Ingvars eru töluvert færri þátttakendur í Bláskógaskokkinu núorðið en voru fyrstu árin og má búast við a.m.k. 40 keppendum að þessu sinni. Aldursdreifingin er hins vegar mikil, alveg niður í unglinga og upp í eldri borgara.
Sjá nánar á hlaup.is.