fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Reebok Fitness flautar til leiks: Vinavika í tilefni HM – Bjóddu vini þínum frítt með þér á æfingu

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 12. júní 2018 15:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað er meira endurnærandi og skemmtilegra en að skella sér í góðan hóptíma í ræktinni, í tækjasalinn eða sund? Jú, það er að hafa góðan vin sinn með sér í þetta allt saman. Líkamsræktarstöðin Reebok Fitness heldur núna svokallaða Vinaviku þar sem allir viðskiptavinir stöðvarinnar geta boðið vini með sér á æfingu alla daga vikunnar. Þetta er meðal annars frábært tækifæri til að koma vini sínum í snertingu við heilbrigðan lífsstíl.

Vinavikan stendur út næsta sunnudag, 17. júní. Það er eftir meiru að slægjast því möguleiki er  á að vinna 100 daga sumarkort. Við gefum Unni Pálmarsdóttur, mannauðs- og markaðsstjóra Reebok Fitness, orðið:

„Það eina sem þarf að gera er að setja mynd á Instagram með myllumerkinu  #VinavikaReebok og þú og félaginn þinn gætuð unnið 100 daga sumarkort í Reebok Fitness. Sumartilboð Reebok Fitness hefur slegið í gegn hjá okkur, en það er 100 daga sumarkort á 18.900 krónur. Við framlengjum því tilboðinu til 17. júní.  Við hvetjum alla til að mæta og setja heilsuna og markmiðin í fyrsta sætið. Við eigum aðeins einn líkama og verðum að huga vel að líkama og sál til framtíðar. Andrúmsloftið hjá okkur er notalegt, rólegt og fjölskylduvænt. Við leggjum mikið upp úr hreinlæti á öllum okkar líkamsræktarstöðvum sem eru með nýjustu lyftingatækjum og  einvala liði einkaþjálfara, kennara og starfsfólks.“

Sérstaða Reebok Fitness er að bjóða upp á líkamsrækt fyrir alla aldurshópa með ólík markmið í huga. Reebok Fitness líkamsræktarstöðvarnar hafa notið mikilla vinsælda, þær eru orðnar sjö talsins og áttunda stöðin verður opnuð þann 1. september, í Lambhaganum við Úlfarsfell.  Korthafar Reebok Fitness hafa aðgang að Kópavogslaug, Salalaug í Kópavogi og Ásvallalaug í Hafnarfirði ásamt öllum opnum hóptímum og þjálfun í tækjasal.  Markmið Reebok Fitness er að bjóða upp á það besta sem er í boði í líkamsrækt á lágu verði án bindinga.

Nánari upplýsingar um þjónustu Reebok Fitness, einkaþjálfun, hóptíma og skráningu á námskeið eru á heimasíðu Reebok Fitness www.reebokfitness.is og Facebook: https://www.facebook.com/reebokfitness.is/

 

„Okkar metnaður er að bjóða upp á faglega þjónustu og stuðla að eflingu lýðheilsu landsmanna. Við hlökkum til að taka vel á móti þér,“ segir Unnur að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum