

Demba Ba dagurinn er dagur sem stuðningsmenn Manchester United og Chelsea tala mikið um.
27 apríl var örlagaríkur dagur í ensku úrvalsdeildinni árið 2014. Þá stefndi allt í að Liverpool yrði enskur meistari.
Chelsea mætti með hálfgert varalið á Anfield en vann 2-0 sigur. Fyrra mark leiksins skoraði Demba Ba eftir að Steven Gerrard, þá fyrirliði Liverpool. Rann á hausinn og Ba slapp einn í gegn.
Einn Íslendingur, Stefán Gunnarsson ákvað að mæta með köku til vinnu í tilefni dagsins en Stefán er markaðsfræðingur.
,,Kom með köku í vinnuna í tilefni dagsins! Gleðilega hátíð,“ skrifaði Stefán á Twitter og birtir þar mynd af köku með Demba Ba á.
Ljóst má vera ef vinnufélagar Stefáns halda með Liverpool að þeir hafi ekki fengið sér bita af kökunni.
Kom með köku í vinnuna í tilefni dagsins! Gleðilega hátíð! #DembaBa #fotbolti pic.twitter.com/tiW7AFOWCR
— Stefan Gunnarsson (@stebbigunn) April 27, 2018