fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Eyjan

Rónalíf

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. janúar 2003 00:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upp úr níu koma rónarnir í bæinn. Þá er lokað í Farsótt. Þeir koma eins og sveimur niður Þingholtin. Sitja á bekkjunum á Lækjartorgi og í Austurstræti þangað til opnar á Kaffi Skít. Það gerist líklega um ellefu. Þá hverfa þeir margir. Mest er að gera á Skít upp úr hádegi. Á kvöldin er þar lítil traffík, þá eru flestir fastagestirnir þreyttir. Þeir koma aftur daginn eftir. Rónar þurfa kannski ekki að hafa áhyggjur af smáborgaralegu amstri, en líklega er þetta frekar tilbreytingarsnautt líf.

Maður sér lögregluna sjaldan amast við rónunum. Frekar að hún taki eitthvað lið sem er að sniglast í kringum þá – eftirlegukindur næturinnar. Þá sem eru ekki ennþá komnir í ræsið. Á laugardagsmorguninn sýndist mér lögreglan vera að hirða tvo drykkjumenn sem húktu heldu heldur aumingjalegir á bekk. Þegar betur var að gáð voru þetta tveir ungir piltar sem litu út fyrir að hafa klárað samræmdu prófin daginn áður.

— — —

Bærinn er ótrúlega óþrifalegur á laugardags- og sunnudagsmorgnum. Pylsubréf, glerbrot og hálfdrukkin glös út um allt. Mávarnir eru að kroppa í óþverrann í morgunsárið. Einu sinni var ég að ganga hjá Tjörninni og þá datt heil sómasamloka rétt við hausinn á mér. Með rækjusalati sýndist mér. Ég gáði upp í himinninn til að athuga hvaðan hún kom. Var það mávur sem ekki loftaði feng sínum? Eða kannski flugvél? Ég kom ekki auga á neitt.

— — —

George Bush segir að milljörðum sé sóað í óþarfa herstöðvar. Morgunblaðið telur það vera stefnu í varnarmálum að vilja halda í fjórar herþotur – með engar sprengjur. Það auglýsir á hverjum degi eftir stefnu Samfylkingarinnar í öryggis- og varnarmálum. Málið er að öllum er sama núorðið. Ungt fólk sem man ekki kalda stríðinu hefur engar tilfinningar gagnvart herstöðinni. Það er ómögulegt að færa rök fyrir því að hún hafi einhvern tilgang nema að detta ofan í þáskildagatíð.

Ég skrifaði um þetta grein í vetur undir heitinu Keflavíkurstöðin – in memoriam. Þar vitnaði ég í Styrmi Gunnarsson sem hefur sjálfur skrifað að áframhaldandi vera hersins í Keflavík byggist á persónulegum tengslum Davíðs Oddssonar við Bushfjölskylduna. Ekki er það nú merkilegur grunnur undir öryggisstefnu eins ríkis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Fólkið velur forsetann – ekki lögreglan eða valdaflokkarnir

Orðið á götunni: Fólkið velur forsetann – ekki lögreglan eða valdaflokkarnir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði